Óskað er eftir umsóknum og tilnefningum um bæjarlistamann Mosfellsbæjar 2022.
Menningar- og nýsköpunarnefnd Mosfellsbæjar auglýsir eftir umsóknum frá listafólki búsettu í Mosfellsbæ og/eða rökstuddum tilnefningum um einstaklinga eða samtök listafólks sem hljóta nafnbótina Bæjarlistamaður Mosfellsbæjar 2022. Þau ein koma til greina við tilnefningu bæjarlistamanns sem hafa verið virk í listgrein sinni og búið í Mosfellsbæ um tveggja ára skeið.
Bæjarlistamaður mun á því ári sem hann er tilnefndur í samvinnu við menningar- og nýsköpunarnefnd kynna sig og verk sín innan Mosfellsbæjar. Ennfremur mælist nefndin til þess að „Bæjarlistamaður Mosfellsbæjar“ láti nafnbótina koma fram sem víðast, bænum og listamanninum til framdráttar. Auk nafnbótarinnar er bæjarlistamanni veittur menningarstyrkur og verður útnefning að vanda tilkynnt í tengslum við bæjarhátíð Mosfellsbæjar, Í túninu heima.
Umsóknir og tilnefningar skulu berast rafrænt í gegnum þjónustugátt bæjarins og þurfa að hafa borist í síðasta lagi 1. ágúst 2022.