Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
2. júní 2020

Óskað eft­ir um­sókn­um og til­nefn­ing­um um bæj­arlista­mann Mos­fells­bæj­ar 2020.

Menn­ing­ar- og ný­sköp­un­ar­nefnd Mos­fells­bæj­ar aug­lýs­ir eft­ir um­sókn­um frá lista­mönn­um bú­sett­um í Mos­fells­bæ og/eða rök­studd­um ábend­ing­um um ein­stak­linga eða sam­tök lista­manna sem hljóta nafn­bót­ina Bæj­arlista­mað­ur Mos­fells­bæj­ar 2020. Þeir ein­ir koma til greina við til­nefn­ingu bæj­arlista­manns sem hafa ver­ið virk­ir í list­grein sinni og búið í Mos­fells­bæ um tveggja ára skeið.

Bæj­arlista­mað­ur mun á því ári sem hann er til­nefnd­ur í sam­vinnu við menn­ing­ar- og ný­sköp­un­ar­nefnd kynna sig og verk sín inn­an Mos­fells­bæj­ar. Enn­frem­ur mæl­ist nefnd­in til þess að „Bæj­arlista­mað­ur Mos­fells­bæj­ar“ láti nafn­bót­ina koma fram sem víð­ast, bæn­um og lista­mann­in­um til fram­drátt­ar. Auk nafn­bót­ar­inn­ar er bæj­arlista­manni veitt­ur menn­ing­ar­styrk­ur og verð­ur út­nefn­ing að vanda til­kynnt í tengsl­um við bæj­ar­há­tíð Mos­fells­bæj­ar, Í tún­inu heima.

Til­nefn­ing­ar og um­sókn­ir þurfa að berast í síð­asta lagi 1. júlí 2020.

Tengt efni

Netspjall

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00