Menningarmálanefnd Mosfellsbæjar auglýsir eftir ábendingu um bæjarlistamann Mosfellsbæjar 2016.
Bæjarlistamanni er jafnframt veittur menningarstyrkur og verður útnefning að vanda tilkynnt í tengslum við bæjarhátíð Mosfellsbæjar, Í túninu heima.
Nefndin óskar hér með eftir tilnefningum eða ábendingum frá Mosfellingum um einstakling eða samtök listamanna í Mosfellsbæ, sem til greina koma sem bæjarlistamaður ársins 2016.
Einungis einstaklingar, sem búsettir eru í Mosfellsbæ, og hópar og samtök, sem starfa í bæjarfélaginu, koma til greina. Þá setur menningarmálanefnd það einnig sem skilyrði að tilnefndir einstaklingar eða hópar hafi verið virkir í listgrein sinni.
Ábendingar þurfa að hafa borist Menningarmálanefnd Mosfellsbæjar í síðasta lagi 1. júní 2016.