Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
15. september 2009

Bæj­arlista­mað­ur Mos­fells­bæj­ar 2009 er Sig­urð­ur Ingvi Snorra­son, klar­in­ett­leik­ari.

Hann tók á móti út­nefn­ing­unni á bæj­ar­há­tíð Mos­fells­bæj­ar, Í tún­inu heima.

Sig­urð­ur hóf tón­list­ar­nám níu ára gam­all. Síð­ar fór hann í Tón­list­ar­há­skól­ann í Vín­ar­borg og lauk það­an prófi með láði árið 1971, þá 21 árs gam­all. Árið 1973 var Sig­urð­ur ráð­inn til Sin­fón­íu­hljóm­sveit­ar Ís­lands og hef­ur margsinn­is leik­ið ein­leik með hljóm­sveit­inni og Ís­lensku hljóm­sveit­inni heima og er­lend­is.  Þá hef­ur hann leik­ið kammer­tónlist með hinum ýmsu tón­list­ar­hóp­um, t.d. með iðk­un Vín­ar­tón­list­ar með eig­in salon­hljóm­sveit­um í dans- og tón­leika­söl­um. Hann hef­ur tek­ið þátt í óperu- og óp­er­ettu­sýn­ing­um Þjóð­leik­húss­ins frá 1973 og sýn­ing­um Ís­lensku Óper­unn­ar frá stofn­un henn­ar.

Þá hef­ur Sig­urð­ur kom­ið fram á mörg­um hljómdisk­um t.d. Ave María Diddú­ar og drengj­anna, einn­ig Og fjöllin urðu kyr, af­mæl­is­dagskrá Mos­fells­bæj­ar, sem gef­inn var út í til­efni 20 ára af­mæl­is Mos­fells­bæj­ar.  Þá eru til marg­vís­leg­ar  hljóð­rit­an­ir þar sem Sig­urð­ur leik­ur ein­leik með Sin­fón­íu­hljóm­sveit Ís­lands.

Sig­urð­ur hef­ur ver­ið mjög virk­ur í ís­lensku tón­list­ar­lífi sem ein­leik­ari og í kammer­tónlist. Sama gild­ir um virkni hans í menn­ing­ar­lífi Mos­fells­bæj­ar. Hann hef­ur m.a. átt stór­an þátt í ár­leg­um að­ventu­tón­leik­um Diddú­ar og drengj­anna, þar sem hann hef­ur út­sett og umskrif­að verk meist­ar­anna, tek­ið þátt í skipu­lagi verk­efna eins og Menn­ing­ar­vori í Mos­fells­bæ sl. vor, þar sem hann út­setti létt sönglög fyr­ir blás­ara og hljóm­sveit.

Menn­ing­ar­mála­nefnd tel­ur Sig­urð Ing­va Snorra­son kla­rín­ettu­leik­ara verð­ug­an að til­nefn­ing­unni Bæj­arlista­mað­ur Mos­fells­bæj­ar 2009.

Tengt efni

Netspjall

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-13:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-13:00