Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
8. mars 2019

Um­hverf­is­svið Mos­fells­bæj­ar ósk­ar eft­ir til­boð­um í verk­ið: Helga­fells­skóli ný­bygg­ing, 2.-3. áfangi.

Mos­fells­bær vinn­ur að bygg­ingu leik- og grunn­skóla í Helga­fells­hverfi í Mos­fells­bæ við Gerplustræti 14. Upp­bygg­ing­in hef­ur ver­ið unn­in í nokkr­um áföng­um. Búið er að byggja fyrri hluta skól­ans þ.e.a.s. 1. áfanga ásamt því að leik­skóli og hluta lóð­ar er að ljúka á næstu mán­uð­um. Helga­fells­hverfi er í örri upp­bygg­ingu. Verktaki sem fær verk­efn­ið mun þurfa að gera ráð fyr­ir og taka til­lit til m.a. ná­granna, um­ferð íbúa sem og ann­arra verktaka í og við bygg­ing­ar­svæði og sér­stak­lega mik­il­vægt er að verktaki taki til­liti til og lág­marki rask á skólast­arf sem haf­ið er í fyrri áföng­um Helga­fells­skóla.

Helstu verk­þætt­ir eru:
Jarð­vinna fyr­ir sökkl­um, upp­steypa, for­steypt­ar ein­ing­ar, hol­plöt­ur og þa­kein­ing­ar. Glugg­ar og hurð­ir, ein­angr­un og klæðn­ing­ar. Þak­frá­gang­ur, nið­ur­föll og grunn­lagn­ir. Inn­an­húss-, ut­an­húss- og lóð­ar­frá­gang­ur.

Helstu magn­töl­ur eru:

  • Jarð­vinna
  • Brúttógólf­flöt­ur 4.336 m2
  • Steypustyrkt­ar­stál 106 tonn
  • Steypa 1.367 m3
  • For­steypt­ar ein­ing­ar (með ein­angr­un og veð­ur­kápu) 1.495 m2
  • Þa­kein­ing­ar með burði, ein­angr­un og vatns­vörn 1.225 m2
  • Hol­plöt­ur 2.420 m2
  • Úti­hurð­ar og glugg­ar 305 m2
  • Þak­frá­gang­ur 600 m2
  • Létt­ir vegg­ir 1.352 m2
  • Ýmis kerf­is­loft 3.901 m2
  • Málun inn­an­húss 10.133 m2
  • Ýmis gól­f­efni 3.804 m2
  • Sér­smíð­að­ar inn­rétt­ing­ar 43 stk
  • Inni­hurð­ir 98 stk
  • Gler­vegg­ir 48 m2
  • Lóð­ar­frá­gang­ur (gervi­gras, beð, hell­ur, mal­bik o.fl) 4.100 m2

Verk­inu skal að fullu lok­ið 6. júní 2021.

Út­boðs­gögn verða af­hent í af­greiðslu bæj­ar­skrif­stofu Mos­fells­bæj­ar, Þver­holti 2, 2. hæð frá og með klukk­an 10:00 á föstu­deg­in­um 15. mars 2019.

Til­boð­um skal skilað á sama stað, bæj­ar­skrif­stof­ur Mos­fells­bæj­ar, eigi síð­ar en föstu­dag­inn 12. apríl 2019 kl.13:00 og þau opn­uð að við­stödd­um þeim bjóð­end­um sem þess óska.

Tengt efni

Netspjall

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00