Bæjarráð lauk í gær árlegum heimsóknum sínum í stofnanir Mosfellsbæjar.
Reglubundnar heimsóknir bæjarráðs í stofnanir Mosfellsbæjar eru til þess ætlaðar að styrkja tengsl bæjarráðs við stofnanir og starfsmenn þeirra. Einnig er farið yfir áherslur í starfsemi stofnana, farið er yfir starfsáætlanir ársins og hvernig rekstur stofnana gengur.
Haraldur Sverrisson bæjarstjóri segir að mikil jákvæði, bjartsýni og samheldni hafi einkennt viðmót stjórnenda og starfsfólks þrátt fyrir krefjandi aðstæður sem nú eru uppi. „Það er mikilvægt að bæjarráð kynnist starfsemi stofnana og að stjórnendur stofnana geti komið ábendingum og upplýsingum um rekstur þeirra beint til kjörinna fulltrúa með þessum hætti.“
Myndin er tekin í heimsókn bæjarráðs í Bókasafn Mosfellsbæjar. Efri röð frá vinstri: Björn Þráinn Þórðarson, framkvæmdastjóri menningarsviðs, Haraldur Sverrisson bæjarstjóri, Jónas Sigurðsson bæjarfulltrúi, Herdís Sigurjónsdóttir formaður bæjarráðs, Karl Tómasson bæjarfulltrúi og Marteinn Magnússon bæjarfulltrúi. Neðri röð frá vinstri: Helga Jónsdóttir, starfsmaður bóksafnsins og Marta Hildur Richter forstöðumaður bókasafnsins.