Mosfellingur ársins 2013
KALEO skipa þeir Jökull Júlíusson, Davíð Antonsson, Daníel Ægir Kristjánsson og Rubin Pollock. Hljómsveitin sló rækilega í gegn á árinu 2013 með útgáfu sinni af laginu Vor í Vaglaskógi. Lagið kom þeim á kortið í tónlistarheiminum og hafa þeir verið óstöðvandi síðan.
„Við erum gríðarlega stoltir að hljóta þessa nafnbót og má segja að þetta setji punktinn yfir i-ið á árinu 2013 sem hefur verið ævintýri líkast,” segja strákarnir í samtali við Mosfelling.
KALEO gáfu út sína fyrstu plötu á árinu sem seldist vel auk þess sem Jökull söngvari var tilnefndur til íslensku tónlistarverðlaunanna sem söngvari ársins.