Mál númer 201007117
- 22. desember 2010
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #549

Fjárhagsáætlun 2011 lögð fram á 16. fundi þróunar- og ferðamálanefndar. Lagt fram á 549. fundi bæjarstjórnar.

- 22. desember 2010
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #549

Fjárhagsáætlun 2011 lögð fram á 155. fundi menningarmálanefndar. Lagt fram á 549. fundi bæjarstjórnar.

- 22. desember 2010
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #549

Fjárhagsáætlun 2011 lögð fram á 246. fundi fræðslunefndar. Lagt fram á 549. fundi bæjarstjórnar.

- 22. desember 2010
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #549
Í samræmi við umræður á síðasta bæjarráðsfundu er fjárhagsáætlun á dagskrá næsta fundar sem er hugsaður sem upplýsingafundur. Sömu fylgiskjöl gilda og fylgja fundarboði bæjarstjórnar.

Afgreiðsla 1009. fundar bæjarráðs, varðandi miðlun upplýsinga um fjárhagsáætlun, lögð fram á 549. fundi bæjarstjórnar.

- 22. desember 2010
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #549
Fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar og stofnana sem bæjarstjórn vísar til annarar umræðu í bæjarstjórn þann 22. desember nk.

Forseti gaf bæjarstjóra orðið og fór bæjarstjóri yfir fyrirliggjandi rekstrar- og fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar og stofnana hans fyrir árið 2011.

Til máls tóku: HSv, JS, JJB, BH, KT, KGÞ og HP.

Tillaga.
Bæjarfulltrúar meirihluta D og V-lista leggja til að drögum að fjárhagsáætlun fyrir árið 2011 verði breytt á þann hátt að komið verði til móts við óskir og ábendingar Ungmennafélagsins Aftureldingar hvað varðar lækkun beinna styrkja til íþrótta- og tómstundafélaga. Því verði framlag til þessa málaflokks hækkað um 2,5 mkr. frá áður framlögðum drögum.
Framkvæmdastjóra menningarsviðs verði falið að útfæra þessa breytingu á viðeigandi lykla.
Jafnframt verði leitast við, við útfærslu á samþykkt íþrótta- og tómstundanefndar frá því fyrr á þessu ári varðandi samstarf um útleigu á tímum og gerð tímatöflu fyrir íþróttamiðstöðina að Varmá, að skapa Aftureldingu aukinn tekjugrundvöll sem kemur enn frekar til móts við sjónarmið félagsins.

Tillagan borin upp og samþykkt með sjö atkvæðum.

Tillaga S-lista Samfylkingar um breytingu á fyrirliggjandi drögum að fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar fyrir árið 2011.

Rekstraráætlun:
1. Ekki verði um að ræða fyrirhugaða skerðingu á framlagi til sérkennslu og stuðningsþjónustu
grunnskólanna.
2. Frístundaávísanir til barna og unglinga verði ekki skertar.
3. Ekki verði skerðing á framlagi bæjarins til UMFA eins og gert er ráð fyrir.

Þess í stað verði útgjöld lækkuð með eftirfarandi hætti:
1. Útgjöld til kynningarmála og auglýsinga verði lækkuð verulega.
2. Hagrætt verði í verkefnum á umverfissviði.
3. Hagrætt verði í verkefnum millistjórnenda hjá stofnunum bæjarins.
4. Lækkun á hlunnindum stjórnenda.
5. Lækkun launa yfir- og millistjórnenda með laun yfir 600.000 á mánuði með samningum við viðkomandi.

Eignfærð fjárfesting:
Ekki verði gert ráð fyrir fjármunum vegna golfskála í eignfærðri fjárfestingu þar sem samningurinn við Kjöl þarfnast endurskoðunar.
Jónas Sigurðsson.

Meirilhluti D og V lista leggur til eftirfarandi málsmeðferð um tillögur S-lista varðandi breytingu að fjárhagsáætlun fyrir árið 2011.
Varðandi hagræðingu í sérkennslu þá taka bæjarfulltrúrar D og V-lista undir sjónarmið um mikilvægi sérkennslu og stuðningsþjónustu skólanna. Bent er á að í Mosfellsbæ fá 30% barna einhverskonar sérkennslu meðan landsmeðaltal er um 25% og því sé ekki útilokað að hægt sé að hagræða í tengslum við þetta verkefni grunnskólanna.

Engu að síður er lagt til að hagræðing og breytt þjónusta verði ekki eingöngu bundin við sérkennslu og fækkun skiptistunda, en skólunum falið að finna leiðir varðandi hagræðingu í launakostnaði grunnskólanna til að koma til móts við hagræðingarkröfu fjárhagsáætlunarinnar. Framkvæmdastjóra fræðslusviðs og fræðslunefnd verði falið að skoða málið á árinu 2011 með það að markmiði að útfærslan verði með þeim hætti að gæði þjónustunnar verði ekki skert.

Ekki er tekið undir tillögu S-lista um að fallið verði frá lækkun frístundaávísunar úr 18 þús kr. í 15 þús. kr. Í reynd er um að ræða að draga til baka þá hækkun sem samþykkt var á frístundaávísinni árið 2009. Rétt er að benda á í þessu sambandi að þrátt fyrir að tekjur sveitarfélagsins séu nú komnar töluvert niður fyrir það sem þær voru áður en frístundaávísanir voru teknar upp er sveitarfélagið að taka virkan þátt í kostnaði barna við íþrótta- og tómtundastarf. Það er fagnaðarefni að það sé hægt miðað við núverandi aðstæður.

Varðandi tillögu á framlagi til UMFA er vísað til tillagna okkar um breytingar á fjárhagsáætlun um bein framlög til íþrótta- og tómstundafélaga.

Í fjárhagsáætluninni er gert ráð fyrir að eignfært framlag vegna framkvæmda við golfskála og íþróttaaðstöðu því tengt verði um 40% lægri en samningur þar um gerir ráð fyrir. Það er ekki skynsamlegt að slá þessari framkvæmd frekar á frest, þar sem skipulag á þessu svæði gerir ekki ráð fyrir golfskála á þeim stað sem hann er nú, auk þess sem sú aðstaða er orðin úrsérgengin og nær ónýt. Brýnt er einnig að bærinn fái til afnota það svæði þar sem núverandi skáli er ásamt æfingasvæði sem mun hafa fjárhagslegan ávinning fyrir sveitarfélagið þegar þar að kemur.

Hvað varðar hugmyndir S-lista um útgjaldalækkun vilja bæjarfulltrúar D og V-lista taka fram að í fjárhagsáætlun fyrir árið 2011 er gert ráð fyrir um 40% lækkun á auglýsingakostnaði og starfshlutfall kynningarstjóra lækki um 40%. Á umhverfissviði er gert ráð fyrir verulegri hagræðingu og lækkun kostnaðar. Þetta er gert með fækkun stöðugilda á sviðinu, lægri framlögum til opinna svæða, leikvalla og staðardagskrárverkefna og minni aðkeyptri vinnu svo eitthvað sé nefnt. Hvað varðar hagræðingu hjá millistjórnendum á stofnunum og það sem er nefnt er hlunnindi milli- og yfirstjórnenda skal á það bent að stjórnkerfi stofnananna er til sífelldrar endurskoðunnar og hefur verið breytt á undanförnum misserum, m.a. hefur stjórnendum fækkað. Launalækkun, sem er upp á 3-7%, hjá stjórnendum bæjarins hefur verið framlengd og laun bæjarstjóra hafa lækkað um 17%.
Bæjarfulltrúar D og V-lista er að sjálfsögðu opnir fyrir hugmyndum og umræðum um frekari hagræðingu á þessum sviðum og því teljum við eðlilegt að þessi mál verði rædd frekar í bæjarráði þar sem fulltrúa S-lista gefist kostur á að kynna frekari útfærslu á þessum hugmyndum.

Bæjarfulltrúar D og V-lista.

Tillaga bæjarfulltrúa S-lista borin upp og felld með fimm atkvæðum gegn tveimur atkvæðum.

Tillaga bæjarfulltrúa D og V-lista um málsmeðferð borin upp og samþykkt með fimm atkvæðum.

Tillaga S- lista Samfylkingar.
Að reglur Mosfellsbæjar um fjárhagsaðstoð verði endurskoðaðar m.a. með tilliti til:
- Að skoðað verði að grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar verði sú sama og fjárhæð atvinnuleysisbóta hverju sinni. Reiknaður verði út aukinn kostnaður annars vegar með viðmið við grunnatvinnleysisbætur eingöngu og hins vegar með viðmið við tekjutengdar atvinnuleysisbætur.
- Að tekið verði tillit til afborgunarbyrði lána viðkomandi þegar tekjustaða er metin.
- Að tekið verði tillit til vandkvæða við sölu eigna þegar eignastaða viðkomandi er metin.
- Önnur efnisatriði sem ástæða er til að fjalla um í ljósi aðstæðna fjölskyldna og einstaklinga í fjárhagsvanda sem skapast hafa af efnahagshruninu.
Jónas Sigurðsson.

Borin er fram málsmeðferðartillaga þess efnis að tillögu bæjarfulltrúa S-lista Samfylkingar verði vísað til framkvæmdastjóra fjölskyldusviðs til skoðunar og fari síðan til umfjöllunar í fjölskyldunefnd og þaðan til bæjarstjórnar.

Málsmeðferðartillagan borin upp og samþykkt með sex atkvæðum.

Helstu niðurstöðutölur í fyrirliggjandi rekstrar- og fjárhagsáætlun fyrir árið 2011 eru eftirfarandi í þús. kr.:

Tekjur: 5.072.479
Gjöld: 4.654.986
Fjármagnsgjöld: 399.569
Rekstrarniðurstaða: 17.925

Eignir í árslok: 11.860.869
Eigið fé í árslok: 3.606.756
Fjárfestingar: 498.000

Álagningarprósentur útsvars og fasteignagjalda fyrir árið 2011 eru eftirfarandi:
Útsvarsprósenta árið 2011 14,48%

Fasteignagjöld íbúðarhúsnæðis (A - skattflokkur)
Fasteignaskattur A 0,265% af fasteignamati húss og lóðar
Vatnsgjald 0,110% af fasteignamati húss og lóðar
Holræsagjald 0,130% af fasteignamati húss og lóðar
Lóðarleiga A 0,340% af fasteignamati lóðar
Sorphirðugjald kr. 17.500 pr. íbúð fyrir 240L tunnu

Fasteignagjöld stofnana skv. 3. gr. reglugerðar 1160/2005 (B - skattflokkur)
Fasteignaskattur B 1,320% af fasteignamati húss og lóðar
Vatnsgjald 0,110% af fasteignamati húss og lóðar
Holræsagjald 0,130% af fasteignamati húss og lóðar
Lóðarleiga B 1,100% af fasteignamati lóðar

Fasteignagjöld annars húsnæðis (C - skattflokkur)
Fasteignaskattur C 1,500% af fasteignamati húss og lóðar
Fasteignaskattur, hesthús 0,450% af fasteignamati húss og lóðar
Vatnsgjald 0,110% af fasteignamati húss og lóðar
Holræsagjald 0,130% af fasteignamati húss og lóðar
Lóðarleiga C 1,100% af fasteignamati lóðar

Gjalddagar fasteignagjalda eru níu, fimmtánda dag hvers mánaðar frá 15. janúar til og með 15. september. Eindagi fasteignagjalda er þrjátíu dögum eftir gjalddaga og fellur allur skattur ársins í gjalddaga ef vanskil verða. Sé fjárhæð fasteignagjalda undir kr. 20.000 er gjalddagi þeirra 15. janúar með eindaga 14. febrúar.

Eftirfarandi breyting er gerð á reglum um afslátt af fasteignagjöldum til elli- og örorkulífeyrisþega hvað varðar 9. og 10. grein, aðrar greinar óbreyttar frá gildandi reglum:

9. gr.
Tekjumörk elli- og örorkulífeyrisþega á árinu 2011 eru sem hér segir:
2011 Tekjur einstaklinga á árinu 2010 2011 Tekjur hjóna á árinu 2010

Afsláttur Frá Til Afsláttur Frá Til
100% 0 2.331.999 100% 0 3.264.999
80% 2.332.000 2.565.999 80% 3.265.000 3.591.999
60% 2.566.000 2.796.999 60% 3.592.000 3.914.999
40% 2.797.000 3.019.999 40% 3.915.000 4.227.999
20% 3.020.000 3.231.999 20% 4.228.000 4.523.999

10. gr.
Reglur þessar taka gildi frá 1. janúar 2011.

Eftirtaldar gjaldskrár liggja fyrir og taka breytingum um 1.1.2011.

Gjaldskrá fyrir ljósritun á bæjarskrifstofum
Gjaldskrá hitaveitu (hækkar 1.7.2011 um 6%)
Gjaldskrá skipulags- og byggingarmála í Mosfellsbæ
Gjaldskrá um hundahald
Gjaldskrá sorphirðu
Gjaldskrá vatnsveitu
Gjaldskrá gæsluvalla
Gjaldskrá íþróttamiðstöðva Mosfellsbæjar
Gjaldskrá v styrks til fjölskyldna ungra barna
Gjaldskrá fyrir leikskóla Mosfellsbæjar
Hámarks gjald foreldra vegna gæslu hjá dagforeldri með þjónustusamning
Gjaldskrá fyrir mötuneyti grunnskóla
Gjaldskrá ávaxtabita í grunnskóla
Gjaldskrá í frístundaseljum
Gjaldskrá skólahljómsveitar

Gjaldskrá bókasafns
Gjaldskrá tónlistardeildar Listaskóla Mos
Gjaldskrá dagvist aldraðra
Gjaldskrá ferðaþjónusta í félagsstarfi aldraðra
Gjaldskrá ferðaþjónusta fatlaðra
Gjaldskrá félagsleg heimaþjónusta
Gjaldskrá heimsending fæðis
Gjaldskrá húsaleiga í félagslegum íbúðum
Gjaldskrá húsaleiga í íbúðum aldraðra
Gjaldskrá húsnæðisfulltrúa
Gjaldskrá námskeiðisgjalda í félagsst. aldraðra

Upp er borið til samþykktar ofangreint, þ.e. rekstrar- og fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar fyrir árið 2011, álagningarprósentur útsvars og fasteignagjalda fyrir árið 2011 og ofangreindar gjaldskrár.

Samþykkt með fimm atkvæðum gegn einu atkvæði.

Bókun bæjarfulltrúa M-lista Íbúahreyfingarinnar.
Það er ljóst að efnahagshrunið hefur komið við Mosfellsbæ eins og aðra, en Íbúahreyfingin telur að núverandi meirihluti velti öllu farginu yfir á íbúa í stað þess að taka til í rekstrinum og yfirstjórn sveitarfélagsins.

Hækkun fasteignaskatta á íbúðarhúsnæði um 20%, atvinnuhúsnæðis um 15%, gjaldskrár gæsluvalla um 25%, gjaldskrá leikskóla um 8%, gjaldskrá dagforeldra um 7%, mötuneytisgjald grunnskólabarna um 10%, ávaxta til grunnskólabarna um 29%, gjaldskrá í frístundaseli um 7%, gjaldskrár fyrir dagvist aldraðra, aksturs í tengslum við félagsstarf aldraðra um 11%, stakra ferða fyrir ellilífeyrisþega um 100% og annan akstur ellilífeyrisþega um 1100%, gjald fyrir heimsendan mat um 33%, gjaldskrá námskeiða fyrir aldraða um 36%.
Þessi upptalning þykir okkur ekki í samræmi við aðra málsgrein greinargerðar bæjarstjóra sem fylgir fjárhagsáætluninni, en þar segir, megináherslur í fjárhagsáætlun 2011 er að standa vörð um grunn- og velferðarþjónustu.

Meirihlutinn stendur þó vörð um suma hluti, áætlað er að hækka framlag til golfklúbbsins Kjalar um 11% og merkja þeim 13 milljónir án þess að þeir hafi beðið um það og án þess að bæjarráð eða bæjarstjórn sé kunnugt um í hvað þessir fjármunir eigi að fara. Meirihlutinn og Samfylkingin neitar að rifta samningi við golfklúbbinn um gerð golfskála sem vitað er að verður ekki byggður. Og á sama tíma er skorið niður um 11% hjá UMFA.
Þá hækkar bæjarstjóri um 2 launaflokka.

Íbúahreyfingin harmar að ekki skuli hafa verið farið í að marka skýra stefnu í hugbúnaðarmálum bæjarins í tengslum við fjárhagsáætlunargerð en eins og Íbúahreyfingin hefur ítrekað bent á er töluverður og varanlegur sparnaður af opnum hugbúnaði bæði í rekstri skóla og öðrum rekstri bæjarfélagsins en ekki síður fyrir fjölskyldur með börn í skólum. Auk þess að spara gjaldeyri og auka atvinnu í landinu.

Íbúahreyfingin lýsir einnig þungum áhyggjum á efnahag sveitarfélagsins vegna áhrifa sjálfskuldarábyrgðar sem fyrrverandi bæjarstjórn undirgekkst fyrir hönd Mosfellsbæjar á 240 milljóna króna kúluláni Helgafellsbygginga ehf. en það lán gjaldfellur næsta haust.

Íbúahreyfingin styður tillögu S lista um breytingar á forgangsröð niðurskurðar í fjárhagsáætlun.
Jón Jósef Bjarnason.

Bókun S- lista Samfylkingar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2011.

Fárhagsáætlunin sem hér hefur verið afgreidd byggir á sýn meirihlutans um forgangsröðun og áherslur í starfsemi og þjónustu bæjarins. Eins og síðastliðin tvö ár hafa afleiðingar efnahagshrunsins afgerandi áhrif á áætlunina. Við slíkar aðstæður er enn mikilvægara en áður í anda hverra gilda er forgangsraðað í þjónustu bæjarins. Ég tel að í fjárhagsáætluninni hafi m.a. ekki verið nægjanlega horft til málefna barna og unglinga og þá einkum þeirra sem höllum fæti standa sem og til mikilvægi þess að þétt sé haldið utan um þennan hóp með tilliti til þeirra aðstæðna sem nú ríkja í samfélaginu.
Vegna þessa lagði ég fram beinar tillögur um breytingar á drögum að áætluninni í þessa átt sem ekki var fallist á og er það miður.
Jónas Sigurðsson.

Bókun V- og D-lista

Bókun bæjarfulltrúa Íbúahreyfingarinnar vekur furðu. Fulltrúum framboðsins hefur verið tíðrætt um um opna og gagnsæja umræðu og nauðsyn þess að veittar séu réttar upplýsingar til íbúa bæjarfélagsins.

Í ræðu og riti hefur fulltrúunum hinsvegar heldur betur orðið á í þeim efnum.

Bókun Íbúahreyfingarinnar nú er enn ein sönnun þess. Of langt mál væri að tiltaka allt sem rangfært er í þessari bókun en hér eru nokkur dæmi:
Leikskólagjölda hækka um 7% en ekki 8%
Hækkun álagningarstuðla fasteignagjalda er fyrst og fremst til að mæta lækkun fasteignamats.
Upptalning á tugum, hundruða eða jafnvel þúsund prósenta hækkunum eru til komnar til að vekja tortryggni bæjarbúa. En þar er fyrst og fremst um verulega lágar upphæðir að ræða.
Jafnræði er í breytingum á framlögum til íþrótta- og tómstundafélaga eins og marg oft hefur verið útskýrt fyrir bæjarfulltrúa Íbúahreyfingarinnar.
Laun bæjarstjóra eru að lækka sbr bókun okkar fyrr á fundinum.
Varðandi svokallað kúlulán til Helgafellsbygginga þá er um að ræða uppgjör á viðskiptaskuld sem bærinn hefur veð fyrir eins og fulltrúum Íbúahreyfingarinnar er fullkunnugt um.

Meirihluti D- og V-lista harmar þessi vinnubrögð sem eru ekki til þess að auka trúverðugleika stjórnmálamanna sem full þörf er á að gera við núverandi aðstæður.

Það er á ábyrgð bæjarfulltrúa að koma fram með staðreyndir en ekki rangfærslur.

Hvað bókun S-lista varðar vísar meirihluti V- og D lista til málsmeðferðartillögu okkar.

Bókun D- og V-lista vegna fjárhagsáætlunar 2011

Megináherslur fjárhagsáætlunar Mosfellsbæjar fyrir árið 2011, sem hér er lögð fram, eru að standa vörð um grunn- og velferðarþjónustu Mosfellsbæjar en jafnframt að skila hallalausum rekstri.

Eftir mikla hagræðingu undanfarin tvö ár var ljóst að þær ákvarðanir sem sveitarfélagið stæði frammi fyrir væru langt frá því auðveldar. Mosfellsbær leitaði til íbúa eftir leiðum til hagræðingar og var haldinn sérstakur íbúafundur um fjárhagsáætlun. Á íbúafundinum kom fram eindregin ósk um að standa vörð um velferð. Fjárhagsáætlun 2011 ber þess vitni að eftir því var farið eins og kostur var. Fjárframlög til málaflokksins aukast milli ára í samræmi við aukna þörf á aðstoð og þjónustu á því sviði á meðan um talsverða hagræðingu er að ræða á flestum öðrum sviðum. Íbúar létu jafnframt í ljós óskir um að ekki yrði hagrætt í skólamálum eða dagvistarmálum barna. Reynt var að koma til móts við þá óskir eins og frekast var unnt. Til marks um það hækka útgjöld til málaflokksins um 2% á milli ára án tillits til verðlagsbreytinga.

Veruleg hagræðingarkrafa hefur verið gerð á yfirstjórn sveitarfélagsins, sem og stjórnunardeildir stofnana. Starfsfólk Mosfellsbæjar tekur að sér aukinn fjölda verkefna og lagt hefur verið áhersla á enn frekara samstarf milli stofnana og deilda í því skyni að ná sem mestri hagræðingu.

Helstu áherslur í fjárhagsáætlun 2011 eru eftirfarandi:
Að haldið verði áfram að byggja upp okkar samfélag og þjónustu þrátt fyrir erfitt árferði eftir því sem hægt er.
Að standa vörð um skóla- og æskulýðsstarf og að forgangsraðað verði í þágu barna og velferðar.
Að veltufé frá rekstri sé jákvætt og að afkoma bæjarins án óreglulegra tekna verði í jafnvægi.
Að samdrætti á tekjum verði m.a. mætt með sparnaði og hagræðingu í rekstri og að sérstaklega verði hagrætt í yfirstjórn og stjórnun almennt, ásamt í eignaliðum og rekstri fasteigna.
Að framkvæmdir hefjist við byggingu nýs framhaldsskóla í miðbæ Mosfellsbæjar og hjúkrunarheimili að Hlaðhömrum í samvinnu við ríkisvaldið.
Að samkomulag um lækkun launa stjórnenda bæjarins um 3-7% gildi áfram að undanskildum bæjarstjóra en laun hans hafa lækkað alls um 17% skv. nýjum ráðningarsamningi.

Dæmi um aðgerðir sem nauðsynlegt verður að ráðast í eru eftirfarandi:
Gjaldskrár hækka um 5-10%
Útsvar hækkar úr 13,19% í 13,28%
Álagningarstuðlar fasteignagjalda verða hækkaðir til að mæta lækkun fasteignamats.
Heimgreiðslur verða lagðar af.
Frístundaávísanir lækka úr kr. 18.000 í kr. 15.000.
Gjaldfrjálsum tíma í fimm ára deild fækkar úr 8 í 3.
Samningar um fjárfestingar í íþróttamannvirkjum verða endurskoðaðir, svo og styrktarsamningar.

Meirihluti D- og V-lista þakkar framkvæmdastjórum sviða, forstöðumönnum stofnana og öðrum þeim starfsmönnum sem komu að vinnu við fjárhagsáætlunina fyrir óeigingjarna vinnu og sýndan skilning á aðstæðunum.

Forseti óskaði bæjarfulltrúum, starfsmönnum öllum og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári og sleit síðan fundi.

- 16. desember 2010
Þróunar- og ferðamálanefnd #16
Fjárhagsáætlunin lögð fram.
- 16. desember 2010
Bæjarráð Mosfellsbæjar #1009
Í samræmi við umræður á síðasta bæjarráðsfundu er fjárhagsáætlun á dagskrá næsta fundar sem er hugsaður sem upplýsingafundur. Sömu fylgiskjöl gilda og fylgja fundarboði bæjarstjórnar.
Til máls tóku: HS, JJB, JBH, HSv, BH, SÓJ, JS og KT.
Umræður fóru fram um fjárhagsáætlunina sem var til fyrri umræðu á bæjarstjórnarfundi í gærdag. Miðlað var ýmsum upplýsingum sem snúa að áætluninni.
- 15. desember 2010
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #548
Fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar fyrir árið 2011 - fyrri umræða. Framlögð gögn á 1008. fundi bæjarráðs gilda.
Á fundinn undir þessum dagskrárlið voru mætt á fundinn Björn Þráinn Þórðarson (BÞÞ) framkvæmdastjóri fræðslusviðs, Jóhanna B. Hansen (JBH) framkvæmdastjóri umhverfissviðs, Unnur V. Ingólfsdóttir (UVI) framkvæmdastjóri fjölskyldusviðs og Pétur J. Lockton (PJL) fjármálastjóri.
Bæjarstjóri fór yfir fyrirliggjandi rekstrar- og fjárhagsáætlun bæjarsjóðs og stofnana hans fyrir árið 2011 og gerði grein fyrir helstu atriðum eins og þau voru kynnt á vinnufundi bæjarráðs í sl. viku og þakkaði að lokum starfsmönnum fyrir framlag þeirra við undirbúning áætlunarinnar.
Forseti bæjarstjórnar tók undir orð bæjarstjóra og þakkaði starfsmönnum fyrir framlag þeirra til undirbúnings áætlunarinna.
Þeir bæjarfulltrúar sem tóku til máls tóku undir þakkir bæjarstjóra og forseta bæjarstjórnar til starfsmanna.

Til máls tóku: HSv, JJB, JS, PJL, JBH, BÞÞ, UVI, HP, KT, BH og HS.

Samþykkt með sjö atkvæðum að vísa fjárhagsáætluninni til síðari umræðu í bæjarstjórn á aukafundi þann 22. desember nk.
- 15. desember 2010
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #548
Drög að fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar 2011, sem snýr að umhverfisnefnd, lögð fram til kynningar.

Erindið lagt fram á 121. fundi umhverfisnefndar. Lagt fram á 548. fundi bæjarstjórnar.

- 15. desember 2010
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #548
Lögð fram drög að fjárhagsáætlun skipulags- og byggingarmála 2011.

Erindið lagt fram á 290. fundar skipulags- og byggingarnefndar. Lagt fram á 548. fundi bæjarstjórnar.

- 15. desember 2010
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #548

Erindið lagt fram á 151. fundar íþrótta- og tómstundanefndar. Lagt fram á 548. fundi bæjarstjórnar.

- 15. desember 2010
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #548

Erindið var lagt fram á 166. fundi fjölskyldunefndar. Lagt fram á 548. fundi bæjarstjórnar.

- 15. desember 2010
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #548
Verið er að leggja lokahönd á fylgiskjöl með þessu erindi og fara þau á fundargáttina strax að svo búnu og ekki síðar en í fyrramálið.

Afgreiðsla 1008. fundar bæjarráðs, um að vísa fjárhagsáætlun 2011 til fyrri umræðu í bæjarstjórn, samþykkt á 548. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.

- 15. desember 2010
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #548
Gögn varðandi fjárhagsáætlun koma frá fjármálastjóra og verða sett á fundargáttina í fyrramálið.

Afgreiðsla 1007. fundar bæjarráðs, um að vísa drögum að fjárhagsáætlun 2011 til kynningar í nefndum bæjarins, samþykkt á 548. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.

- 14. desember 2010
Fræðslunefnd Mosfellsbæjar #246
Fjárhagsáætlun 2011 lögð fram.
Tekin var til umfjöllunar áætlun fræðslusviðs, Listaskóla og Skólahljómsveitar, leikskóla og grunnskóla, ásamt öðrum fjárhagsdeildum á fræðslusviði.
- 13. desember 2010
Menningarmálanefnd Mosfellsbæjar #155
Fjárhagsáætlun 2011 vegna menningarmála lögð fram.
- 9. desember 2010
Umhverfisnefnd Mosfellsbæjar #121
Drög að fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar 2011, sem snýr að umhverfisnefnd, lögð fram til kynningar.
Til máls tóku: BBj, ÖJ, KDH, SiG, AMEE, GP, JBH, TGG
Lögð fram til kynningar drög að fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar 2011 sem snýr að umhverfismálum.
- 9. desember 2010
Bæjarráð Mosfellsbæjar #1008
Verið er að leggja lokahönd á fylgiskjöl með þessu erindi og fara þau á fundargáttina strax að svo búnu og ekki síðar en í fyrramálið.

Til máls tóku: HSv, JJB, PJL, SÓJ, BÞÞ, JBH, KT og JS.

Samþykkt með þremur atkvæðum að vísa fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar til fyrri umræðu á næsta fundi bæjarstjórnar þann 15. desember nk.

- 9. desember 2010
Íþrótta- og tómstundanefnd Mosfellsbæjar #151
Fjárhagsáætlunin lögð fram.
- 7. desember 2010
Skipulags- og byggingarnefnd Mosfellsbæjar #290
Lögð fram drög að fjárhagsáætlun skipulags- og byggingarmála 2011.
Lögð fram drög að fjárhagsáætlun skipulags- og byggingarmála 2011.
Fjárhagsáætlunin lögð fram til kynningar.
- 2. desember 2010
Bæjarráð Mosfellsbæjar #1007
Gögn varðandi fjárhagsáætlun koma frá fjármálastjóra og verða sett á fundargáttina í fyrramálið.
Á fundinn undir þessu dagskrárlið var mættur Pétur J. Lockton (PJL) fjármálastjóri.
Til máls tóku: HSv, JJB, JS, BH og HS.
Samþykkt með þremur atkvæðum að vísa drögum að fjárhagsáætlun til kynningar hjá nefndum bæjarins.
- 2. desember 2010
Fjölskyldunefnd Mosfellsbæjar #166
Lagt fram.
- 17. nóvember 2010
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #546
Bæjarstjóri kynnir stöðu vinnu við gerð fjárhagsáætlunar. Engin gögn framlögð.

Erindið lagt fram á 546. fundi bæjarstjórnar.

- 11. nóvember 2010
Bæjarráð Mosfellsbæjar #1004
Bæjarstjóri kynnir stöðu vinnu við gerð fjárhagsáætlunar. Engin gögn framlögð.
Á fundinn mætti undir þessum dagskrárlið Pétur J. Lockton fjármálastjóri.
Til máls tóku: HSv, HS, ÓG, JJB, JS og BH
Umræður fóru fram um stöðu og undirbúning fjárhagsáætlunar fyrir árið 2011. Jafnframt var rætt um tímasetningar vegna vinnufunda bæjarráðs.
- 20. október 2010
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #544
Afgreiðsla 996. fundar bæjarráðs samþykkt á 544. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.
- 7. október 2010
Bæjarráð Mosfellsbæjar #996
Til máls tóku: HSv, PJL, JJB, HS, JBH, UVI, SÓJ, JS, KT og BH.
Bæjarstjóri fór yfir upplegg að undirbúningi og komandi vinnu vegna fjárhagsáætlunar fyrir árið 2011.
Jónas Sigurðsson lagði fram nokkur efnisatriði vegna þeirrar vinnu sem nú er að fara í gang vegna fjárhagsáætlunar fyrir árið 2011.
Samþykkt með þremur atkvæðum að unnið verði samkvæmt því uppleggi sem bæjarstjóri fór yfir á fundinum.