Laust er til umsóknar starf í fjármáladeild á bæjarskrifstofum Mosfellsbæjar. Verkefnastjóri í fjármáladeild starfar náið með fjármálastjóra og aðalbókara og veitir faglega ráðgjöf til forstöðumanna. Hann er staðgengill fjármálastjóra, hefur faglega umsjón með innra eftirliti og afstemmingum reikninga ásamt því að bera ábyrgð á innheimtumálum. Hann ber ábyrgð á lánakerfi og lánveitingum og hefur umsjón með kostnaðargreiningu og móttöku rafrænna reikninga. Verkefnastjóri tekur þátt í undirbúningi og gerð fjárhagsáætlunar, árshlutauppgjörs og ársreiknings auk þess að sjá um öflun gagna, framsetningu þeirra og gerð greinargerða.
Vilt þú vinna hjá framsæknu bæjarfélagi?
Laust er til umsóknar starf í fjármáladeild á bæjarskrifstofum Mosfellsbæjar.
Verkefnastjóri í fjármáladeild
Bæjarskrifstofur Mosfellsbæjar eru í Kjarna að Þverholti 2 og þar starfa að jafnaði um 45 manns. Í boði er hvetjandi starfsumhverfi og haft að leiðarljósi að vinnustaðurinn sé eftirsóknarverður og aðlaðandi.
Helstu verkefni
Verkefnastjóri í fjármáladeild starfar náið með fjármálastjóra og aðalbókara og veitir faglega ráðgjöf til forstöðumanna. Hann er staðgengill fjármálastjóra, hefur faglega umsjón með innra eftirliti og afstemmingum reikninga ásamt því að bera ábyrgð á innheimtumálum. Hann ber ábyrgð á lánakerfi og lánveitingum og hefur umsjón með kostnaðargreiningu og móttöku rafrænna reikninga. Verkefnastjóri tekur þátt í undirbúningi og gerð fjárhagsáætlunar, árshlutauppgjörs og ársreiknings auk þess að sjá um öflun gagna, framsetningu þeirra og gerð greinargerða. Þá gegnir hann lykilhlutverki við gerð og innleiðingu gæðakerfis ásamt því að taka þátt í vinnu sem stuðlar að úrbótum í rafrænni þjónustu.Menntunar- og hæfnikröfur:
- Háskólamenntun á sviði viðskiptafræða er skilyrði.
- Mjög góð tölvukunnátta og sérþekking á Excel er skilyrði.
- Reynsla af Dynamics NAV er æskileg.
- Reynsla af sambærilegu starfi er kostur.
- Reynsla af gerð og innleiðingu gæðakerfis er kostur.
- Mjög góð samskiptahæfni, jákvætt viðhorf og lausnamiðuð hugsun er skilyrði.
- Skipulagshæfni, nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum er skilyrði.
- Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig skipulega bæði í ræðu og riti er skilyrði.
Umsóknarfrestur er til 30. nóvember 2015.
Umsóknir ásamt starfsferilsskrá og kynningarbréfi sem greinir frá ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni í starfið skulu berast á netfangið mos[hjá]mos.is.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Pétur J. Lockton, fjármálastjóri í síma 525 6700. Um framtíðarstarf er að ræða. Öllum umsóknum verður svarað.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og aðildarfélaga BHM.
Við hvetjum fólk af báðum kynjum til að sækja um starfið.
Virðing – jákvæðni – framsækni – umhyggja