Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
13. nóvember 2015

    Laust er til um­sókn­ar starf í fjár­mála­deild á bæj­ar­skrif­stof­um Mos­fells­bæj­ar. Verk­efna­stjóri í fjár­mála­deild starf­ar náið með fjár­mála­stjóra og að­al­bók­ara og veit­ir fag­lega ráð­gjöf til for­stöðu­manna. Hann er stað­gengill fjár­mála­stjóra, hef­ur fag­lega um­sjón með innra eft­ir­liti og af­stemm­ing­um reikn­inga ásamt því að bera ábyrgð á inn­heimtu­mál­um. Hann ber ábyrgð á lána­kerfi og lán­veit­ing­um og hef­ur um­sjón með kostn­að­ar­grein­ingu og mót­töku ra­f­rænna reikn­inga. Verk­efna­stjóri tek­ur þátt í und­ir­bún­ingi og gerð fjár­hags­áætl­un­ar, árs­hluta­upp­gjörs og árs­reikn­ings auk þess að sjá um öfl­un gagna, fram­setn­ingu þeirra og gerð grein­ar­gerða.

    Vilt þú vinna hjá fram­sæknu bæj­ar­fé­lagi?

    Laust er til um­sókn­ar starf í fjár­mála­deild á bæj­ar­skrif­stof­um Mos­fells­bæj­ar.

    Verk­efna­stjóri í fjár­mála­deild

    Bæj­ar­skrif­stof­ur Mos­fells­bæj­ar eru í Kjarna að Þver­holti 2 og þar starfa að jafn­aði um 45 manns. Í boði er hvetj­andi starfs­um­hverfi og haft að leið­ar­ljósi að vinnu­stað­ur­inn sé eft­ir­sókn­ar­verð­ur og að­lað­andi.

    Helstu verk­efni

    Verk­efna­stjóri í fjár­mála­deild starf­ar náið með fjár­mála­stjóra og að­al­bók­ara og veit­ir fag­lega ráð­gjöf til for­stöðu­manna. Hann er stað­gengill fjár­mála­stjóra, hef­ur fag­lega um­sjón með innra eft­ir­liti og af­stemm­ing­um reikn­inga ásamt því að bera ábyrgð á inn­heimtu­mál­um. Hann ber ábyrgð á lána­kerfi og lán­veit­ing­um og hef­ur um­sjón með kostn­að­ar­grein­ingu og mót­töku ra­f­rænna reikn­inga. Verk­efna­stjóri tek­ur þátt í und­ir­bún­ingi og gerð fjár­hags­áætl­un­ar, árs­hluta­upp­gjörs og árs­reikn­ings auk þess að sjá um öfl­un gagna, fram­setn­ingu þeirra og gerð grein­ar­gerða. Þá gegn­ir hann lyk­il­hlut­verki við gerð og inn­leið­ingu gæða­kerf­is ásamt því að taka þátt í vinnu sem stuðl­ar að úr­bót­um í ra­f­rænni þjón­ustu.

    Mennt­un­ar- og hæfni­kröf­ur:

      • Há­skóla­mennt­un á sviði við­skipta­fræða er skil­yrði. 
      • Mjög góð tölvukunn­átta og sér­þekk­ing á Excel er skil­yrði.
      • Reynsla af Dynamics NAV er æski­leg.
      • Reynsla af sam­bæri­legu starfi er kost­ur.
      • Reynsla af gerð og inn­leið­ingu gæða­kerf­is er kost­ur.
      • Mjög góð sam­skipta­hæfni, já­kvætt við­horf og lausnamið­uð hugs­un er skil­yrði.
      • Skipu­lags­hæfni, ná­kvæmni, frum­kvæði og sjálf­stæði í vinnu­brögð­um er skil­yrði.
      • Góð ís­lenskukunn­átta og færni til að tjá sig skipu­lega bæði í ræðu og riti er skil­yrði. 

    Um­sókn­ar­frest­ur er til 30. nóv­em­ber 2015.
    Um­sókn­ir ásamt starfs­fer­ils­skrá og kynn­ing­ar­bréfi sem grein­ir frá ástæðu um­sókn­ar og rök­stuðn­ingi fyr­ir hæfni í starf­ið skulu berast á net­fang­ið mos[hjá]mos.is.

    Nán­ari upp­lýs­ing­ar um starf­ið veit­ir Pét­ur J. Lockton, fjár­mála­stjóri í síma 525 6700. Um fram­tíð­ar­starf er að ræða. Öll­um um­sókn­um verð­ur svarað.

    Laun eru sam­kvæmt kjara­samn­ingi Sam­bands ís­lenskra sveit­ar­fé­laga og að­ild­ar­fé­laga BHM.

    Við hvetj­um fólk af báð­um kynj­um til að sækja um starf­ið.

    Virð­ing – já­kvæðni – fram­sækni – um­hyggja

    Netspjall

    Opið virka daga
    mán. – fim. 8:00-16:00
    fös. 8:00-14:00

    Þjónustuver 525-6700

    Opið virka daga
    mán. – fim. 8:00-16:00
    fös. 8:00-14:00