Í júlí samþykkti bæjarráð Mosfellsbæjar einróma að úthluta lóð úr landi Sólvalla undir byggingu einkarekinnar heilbrigðisstofnunar og hótels. Talsvert hefur verið rætt og skrifað um verkefnið.
Aðkoma Mosfellsbæjar er skipulagsmál
Á aðalskipulagi er umrædd lóð skipulögð undir heilbrigðisstarfsemi. Ástæðan fyrir því er sú að sambærilegt verkefni hefur áður komið til umfjöllunar hjá bæjar- og skipulagsyfirvöldum í Mosfellsbæ.
Lóðinni var úthlutað gegn ákveðnum skilyrðum
Samningurinn sem gerður var við MCPB ehf felur í sér tvo fyrirvara af hálfu Mosfellsbæjar. Annars vegar ber félaginu að leggja fram viðskiptaáætlun, upplýsingar um fjármögnun og tímaáætlanir í síðasta lagi 1. desember 2017. Hins vegar þarf að hefja framkvæmdir innan tveggja ára frá undirritun samnings. Verði þessum skilyrðum ekki fullnægt er Mosfellsbæ heimilt að rifta samningnum.
Úthlutunin gengur eingöngu út á uppbyggingu á heilbrigðisþjónustu og/eða hótel. Aðalskipulag og samningurinn kemur því í veg fyrir að félagið hafi kost á því að fara í annars konar uppbyggingu á lóðinni.
Í samningnum er einnig tekið á atriðum eins og gatna- og lagnagerð en félagið mun sjálft standa straum af kostnaði við þær framkvæmdir. MCPB ehf mun greiða ígildi gatnagerðargjalda sem nema um 500 milljónum til Mosfellsbæjar áður en framkvæmdir hefjast.
Jafnframt eru ákvæði í samningnum sem koma í veg fyrir veðsetningu lóðarinnar án samþykkis Mosfellsbæjar.
Hægt er að sjá samninginn í heild sinni á heimasíðu Mosfellsbæjar undir fundargerð bæjarráðs frá 21. Júlí 2016.