Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
16. apríl 2020

    Um­hverf­is­svið Mos­fells­bæj­ar ósk­ar eft­ir til­boð­um í verk­ið: Súlu­höfði – Stíg­ar og land­mót­un. Verk­ið fel­ur í sér upp­bygg­ingu og frá­g­ang á göngu- og hjóla­stíg við Súlu­höfða í Mos­fells­bæ, en búið er að fjölga lóð­um og bæta við einni götu norð­vest­an við nú­ver­andi byggð.

    Um­hverf­is­svið Mos­fells­bæj­ar ósk­ar eft­ir til­boð­um í verk­ið: Súlu­höfði – Stíg­ar og land­mót­un.

    Verk­ið fel­ur í sér upp­bygg­ingu og frá­g­ang á göngu- og hjóla­stíg við Súlu­höfða í Mos­fells­bæ, en búið er að fjölga lóð­um og bæta við einni götu norð­vest­an við nú­ver­andi byggð. Leggja skal nýj­an stíg sem skal að­laga að nú­ver­andi stíg­um sem tengjast fram­kvæmda­svæð­inu og land­mót­un með­fram nýj­um stíg­um. Frá­gang­ur á hand­rið­um og list­um með­fram stíg­um úr timbri, ásamt hellu­lögn­um og reis­ingu á ljósastaur­um.

    Helstu magn­töl­ur:

    • Up­p­úr­tekt og til­flutn­ing­ur á jarð­vegi – um 3.500 m³
    • Fyll­ing und­ir stíga og yf­ir­borðs­frág­ang – um 2.500 m³
    • Mal­bik­un og muln­ing­ur – um 3.000 m
    • Hellu­lagn­ir – um 100 m²
    • Grjót­hleðsur – um 200 m
    • Hand­rið og list­ar við stíga – um 100 m
    • Grasþakn­ing – um 6.400 m²
    • Gras­sán­ing – um 6.000 m²
    • Gróð­ur­mold og gróð­urs­and­ur – um 300 m³

     

    Verk­inu skal að fullu lok­ið 1. sept­em­ber 2020.

    Óska skal eft­ir út­boðs­gögn­um með tölvu­pósti á net­fang­ið bjorg­ving[hja]mos.is frá og með klukk­an 11:00 á þriðju­deg­in­um 21. apríl 2020. Bjóð­end­ur eru vin­sam­leg­ast beðn­ir um að gefa upp fullt nafn, kenni­tölu, heim­il­is­fang, síma og net­fang þeg­ar óskað er eft­ir út­boðs­gögn­um.

    Til­boð­um skal skilað á sama hátt, í tölvu­pósti á net­fang­ið bjorg­ving[hja]mos.is fyr­ir klukk­an 11:00 á fimmtu­deg­in­um 30. apríl 2020, þar sem þau verða opn­uð í formi skjáf­und­ar með að­gangi fyr­ir þá bjóð­end­ur sem þess óska.

    – Um­hverf­is­svið Mos­fells­bæj­ar.

    Netspjall

    Opið virka daga
    mán., þri., fim. 8:00-16:00
    mið. 8:00-18:00
    fös. 8:00-14:00

    Þjónustuver 525-6700

    Opið virka daga
    mán., þri., fim. 8:00-16:00
    mið. 8:00-18:00
    fös. 8:00-14:00