Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
17. janúar 2017

    Um­hverf­is­svið Mos­fells­bæj­ar ósk­ar eft­ir til­boð­um í verk­ið: Helga­fells­skóli ný­bygg­ing, upp­steypa og ut­an­húss­frá­gang­ur.

    Um­hverf­is­svið Mos­fells­bæj­ar ósk­ar eft­ir til­boð­um í verk­ið: Helga­fells­skóli ný­bygg­ing, upp­steypa og ut­an­húss­frá­gang­ur.

    Mos­fells­bær vinn­ur nú að bygg­ingu leik- og grunn­skóla í Helga­fells­hverfi í Mos­fells­bæ, nán­ar til­tek­ið við Gerplustræti 14. Ráð­gert er að upp­bygg­ing­in verði í nokkr­um áföng­um, 1. áfangi sem nú er unn­ið að er fyr­ir yngsta stig grunn­skóla og á að taka í notk­un haust­ið 2018. 1. áfang­inn er um 4.000 ferm. bygg­ing á tveim­ur hæð­um, þar af nokk­ur hluti sem verð­ur inn­rétt­að­ur og tekin í notk­un á síð­ari stig­um. Full­bú­inn skóli verð­ur um 7.300 ferm. Verk­ið sem nú er boð­ið út er ann­ar verk­hluti 1. áfanga og nefn­ist upp­steypa og ut­an­húss­frá­gang­ur.

    Helstu verk­þætt­ir eru:

    • Upp­steypa, for­steypt­ar ein­ing­ar, hol­plöt­ur og þa­kein­ing­ar.
    • Úti­glugg­ar og -hurð­ir, ein­angr­un og klæðn­ing­ar.
    • Þak­frá­gang­ur, nið­ur­föll og grunn­lagn­ir.

    Helstu magn­töl­ur eru:

    • Brúttógólf­flöt­ur 4.006 m²
    • Stein­steypa 1.200 m³
    • For­steypt­ar út­veggja­ein­ing­ar 1.191 m²
    • Hol­plöt­ur 2.900 m²
    • Þa­kein­ing­ar 1.432 m²
    • Glugg­ar og úti­hurð­ir 461 m²
    • Við­snú­ið þak 1.068 m²
    • Leik­svæði á þaki með gervi­grasi og göngu­stíg­um 959 m²

    Verk­inu er skipt í tvo áfanga:

    • Upp­steypu og frá­gangi glugga skal lok­ið 1. des­em­ber 2017
    • Ut­an­hús­frá­gangi skal lok­ið fyr­ir 1. fe­brú­ar 2018

    Út­boð á inn­an­hús­frá­gangi er fyr­ir­hug­að í fram­haldi þessa verks sem skal lok­ið 1. júlí 2018

    Út­boðs­gögn á geisladiski verða af­hent í af­greiðslu bæj­ar­skrif­stofu Mos­fells­bæj­ar, Þver­holti 2, 2. hæð frá og með þriðju­deg­in­um 17. janú­ar 2017.

    Til­boð­um skal skilað á sama stað eigi síð­ar en þriðju­dag­inn 31. janú­ar 2017 kl. 11:00 og þau opn­uð að við­stödd­um þeim bjóð­end­um sem þess óska.

    Netspjall

    Opið virka daga
    mán., þri., fim. 8:00-16:00
    mið. 8:00-18:00
    fös. 8:00-14:00

    Þjónustuver 525-6700

    Opið virka daga
    mán., þri., fim. 8:00-16:00
    mið. 8:00-18:00
    fös. 8:00-14:00