Umhverfissvið Mosfellsbæjar óskar eftir tilboðum í verkið: Helgafellsskóli nýbygging, fullnaðarfrágangur. Mosfellsbær vinnur að byggingu leik- og grunnskóla í Helgafellshverfi í Mosfellsbæ við Gerplustræti 14.
Umhverfissvið Mosfellsbæjar óskar eftir tilboðum í verkið: Helgafellsskóli nýbygging, fullnaðarfrágangur.
Mosfellsbær vinnur að byggingu leik- og grunnskóla í Helgafellshverfi í Mosfellsbæ við Gerplustræti 14. Uppbyggingin verður í nokkrum áföngum, 1. áfangi sem nú er í útboði er fyrir yngsta stig grunnskóla og á að taka í notkun janúar 2019. 1. áfangi er um 4.000 m² en fullbúinn skóli verður 7.300 m². Byggingin er á tveimur hæðum, þar af er hluti sem verður innréttaður og tekinn í notkun á síðari stigum.
Helstu verkþættir eru:
- Uppsteypa, forsteyptar einingar, holplötur og þakeiningar.
- Gluggar og -hurðir, einangrun og klæðningar.
- Þakfrágangur, niðurföll og grunnlagnir.
- Innanhússfrágangur, fullnaðarfrágangur fyrstu hæðar.
- Jarðvinnu fyrir grunni skólans er lokið.
Helstu magntölur eru:
- Brúttóflatarmál 4.027 m²
- Fullfrágengið 2.583 m²
- Tilbúið undir tréverk 1.444 m²
- Steypustyrktarstál 147 tonn
- Steypa 4.996 m³
- Forsteyptar einingar (með einangrun og veðurkápu) 1191 m²
- Þakeiningar með burði, einangrun og vatnsvörn 1433 m²
- Holplötur 1243m²
- Útihurðir og gluggar 461 m²
- Þakfrágangur 1109 m²
- Léttir veggir 882 m²
- Ýmis kerfisloft 2.229 m²
- Málun innanhúss 11.035 m²
- Ýmis gólfefni 2.016 m²
- Sérsmíðaðar innréttingar 279 lengdarmetrar
- Innihurðir 74 stykki
Verkinu skal að fullu lokið 5. nóvember 2018
Útboðsgögn verða afhent í afgreiðslu bæjarskrifstofu Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 2. hæð frá og með klukkan 12:00 þann 28. mars 2017.
Kynningarfundur verður haldinn á sama stað þann 4. apríl 2017 kl.14:00.
Tilboðum skal skilað á sama stað, bæjarskrifstofur Mosfellsbæjar, eigi síðar en 28. apríl 2017 kl.11:00 og þau opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.