Umhverfissvið Mosfellsbæjar óskar eftir tilboðum í verkið: Gatnagerð í Reykjahverfi, Mosfellsbæ.
Umhverfissvið Mosfellsbæjar óskar eftir tilboðum í verkið: Gatnagerð í Reykjahverfi, Mosfellsbæ.
Um er að ræða íbúðasvæði í Reykjahverfi (Reykjahvoll) sem staðsett er austan Reykjavegar í Mosfellsbæ. Vakin er athygli á því að búið er í nokkrum húsum á svæðinu og skal verktaki taka tillit til þess.
Helstu verkþættir:
Helstu verkþættir eru gatnagerð og veitukerfi í götu 2-4 og götu 12-18. Ljúka skal byggingu gatna, gangstíga og leggja í þær vatns-, holræsa- og hitaveitulagnir ásamt heimtaugum, og tengja núverandi veitukerfum.
Helstu magntölur eru:
- Gröftur – 2.500 m3
- Fylling – 3.320 m3
- Holræsi – 416 m
- Hitaveitulagnir – 325 m
- Vatnsveitulagnir – 261 m
Verkinu skal að fullu lokið 1. maí 2019.
Útboðsgögn verða afhent í afgreiðslu bæjarskrifstofu Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 2. hæð frá og með klukkan 12:00 á mánudeginum 30. júlí 2018.
Tilboðum skal skilað á sama stað, bæjarskrifstofur Mosfellsbæjar, eigi síðar en föstudaginn 31. ágúst 2018.