Umhverfissvið Mosfellsbæjar óskar eftir tilboðum í verkið: Færsla Skeiðholts, gatnagerð, lagnir og hljóðveggur. Um er að ræða færslu á núverandi götu Skeiðholts í Mosfellsbæ.
Umhverfissvið Mosfellsbæjar óskar eftir tilboðum í verkið: Færsla Skeiðholts, gatnagerð, lagnir og hljóðveggur.
Um er að ræða færslu á núverandi götu Skeiðholts í Mosfellsbæ. Helstu verkþættir eru rif og fræsing núverandi götu, gatnagerð fyrir nýrri götu, gerð bílastæðagötu, stígagerð, lagning regnvatnslagna, aðlögun annarra veitna og gerð hljóðveggja meðfram Skeiðholti.
Helstu magntölur eru:
Gatnagerð og stígar:
- Gröftur – 2800 m³
- Fylling – 3000 m³
- Lagnaskurðir – 330 m
- Regnvatnslagnir – 150 m
- Ídráttarrör – 100 m
- Strengir – 1000 m
- Fræsing – 1900 m²
- Malbik – 4700 m²
- Kantsteinn – 650 m
- Hellulögn – 600 m
Hljóðveggir:
- Gröftur – 700 m³
- Fylling – 700 m³
- Steyptir sökklar – 320 m
- Hljóðveggir – 320 m
Fyrsta áfanga skal að fullu lokið 1. ágúst 2018.
Útboðsgögn verða afhent í afgreiðslu bæjarskrifstofu Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 2. hæð frá og með þriðjudeginum 19. september 2017 klukkan 12:00.
Tilboðum skal skilað á sama stað, bæjarskrifstofur Mosfellsbæjar, eigi síðar en föstudaginn 20. október 2017 kl.11:00 og þau opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.