Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
15. september 2017

    Um­hverf­is­svið Mos­fells­bæj­ar ósk­ar eft­ir til­boð­um í verk­ið: Færsla Skeið­holts, gatna­gerð, lagn­ir og hljóð­vegg­ur. Um er að ræða færslu á nú­ver­andi götu Skeið­holts í Mos­fells­bæ.

    Um­hverf­is­svið Mos­fells­bæj­ar ósk­ar eft­ir til­boð­um í verk­ið: Færsla Skeið­holts, gatna­gerð, lagn­ir og hljóð­vegg­ur.

    Um er að ræða færslu á nú­ver­andi götu Skeið­holts í Mos­fells­bæ. Helstu verk­þætt­ir eru rif og fræs­ing nú­ver­andi götu, gatna­gerð fyr­ir nýrri götu, gerð bíla­stæða­götu, stíga­gerð, lagn­ing regn­vatns­lagna, að­lög­un ann­arra veitna og gerð hljóð­veggja með­fram Skeið­holti.

    Helstu magn­töl­ur eru: 

    Gatna­gerð og stíg­ar:

    • Gröft­ur – 2800 m³
    • Fyll­ing – 3000 m³ 
    • Lagna­skurð­ir – 330 m 
    • Regn­vatns­lagn­ir – 150 m 
    • Ídrátt­ar­rör – 100 m 
    • Streng­ir – 1000 m 
    • Fræs­ing – 1900 m² 
    • Mal­bik – 4700 m² 
    • Kant­steinn – 650 m 
    • Hellu­lögn – 600 m 

    Hljóð­vegg­ir:

    • Gröft­ur – 700 m³ 
    • Fyll­ing – 700 m³ 
    • Steypt­ir sökkl­ar – 320 m 
    • Hljóð­vegg­ir – 320 m 

    Fyrsta áfanga skal að fullu lok­ið 1. ág­úst 2018.

    Út­boðs­gögn verða af­hent í af­greiðslu bæj­ar­skrif­stofu Mos­fells­bæj­ar, Þver­holti 2, 2. hæð frá og með þriðju­deg­in­um 19. sept­em­ber 2017 klukk­an 12:00.

    Til­boð­um skal skilað á sama stað, bæj­ar­skrif­stof­ur Mos­fells­bæj­ar, eigi síð­ar en föstu­dag­inn 20. októ­ber 2017 kl.11:00 og þau opn­uð að við­stödd­um þeim bjóð­end­um sem þess óska.

    Netspjall

    Opið virka daga
    mán., þri., fim. 8:00-16:00
    mið. 8:00-18:00
    fös. 8:00-14:00

    Þjónustuver 525-6700

    Opið virka daga
    mán., þri., fim. 8:00-16:00
    mið. 8:00-18:00
    fös. 8:00-14:00