Í dag verða tímamót í sögu skólamála í Mosfellsbæ og á landinu öllu með opnun Krikaskóli sem er skóli fyrir börn á aldrinum eins árs til níu ára. Skólinn verður starfræktur allan daginn, allan ársins hring. Mosfellingum og öðrum áhugasömum er boðið á opnunarhátíð Krikaskólaí dag kl. 15-17 í nýju húsnæði skólans við Sunnukrika í Mosfellsbæ.
Í dag verða tímamót í sögu skólamála í Mosfellsbæ og á landinu öllu meðopnun Krikaskóli sem er skóli fyrir börn á aldrinum eins árs til níuára. Skólinn verður starfræktur allan daginn, allan ársins hring.Mosfellingum og öðrum áhugasömum er boðið á opnunarhátíð Krikaskólaí dag kl. 15-17 í nýju húsnæði skólans við Sunnukrika í Mosfellsbæ.
Skólaárið og skóladagurinn verður miðað við það sem þekkist í leikskólum því boðið verður upp á samfelldan skóladag frá hálf átta til rúmlega fimm allt árið um kring fyrir öll börnin. Með því er komið til móts við þarfir foreldra í nútímasamfélagi sem undantekningalítið vinna bæði fulla vinnu utan heimilis. Tekið er mið af skóladagatali leikskólans er varðar skipulag því verður um að ræða 200 daga skóladagatal í stað 180 daga sem þekkist í hefðbundnum grunnskólum. Börnin fá að sjálfsögðu lögbundið kennslumagn í grunnskólanum en því er dreift yfir lengra tímabil, sem gefur meira svigrúm fyrir leik, útivist og skapandi starf á degi hverjum.
Haldin var samkeppni um þróunskólastefnu skólans á árinu 2007 og fyrsta skóflustunga var tekin 25.september 2008. Vinningstillagan, sem unnin var af hópi sem kallar sigBræðingur, gengur út á grunnhugmynd skólans um lýðræðisleg vinnubrögð,einstaklingsmiðað nám og að efla reynslu og virkni barnsins með því aðbjóða því upp á verkefni og viðfangsefni úr umhverfi sínum og veruleika.Krikaskóla opnaði sumarið 2008 með leikskóladeild í Brekkukoti íHelgafellslandi og eru nú börn frá 2ja til 7 ára í skólanum.
Miklar væntingar eru til hins nýja skóla, bæði frá skólafólki sem foreldrum. Þá er starfsfólkið spennt að fá tækifæri til þess að fara nýjar leiðir í skólastarfi.