Þróunar- og ferðamálanefnd gerir árlega tillögu til bæjarstjórnar Mosfellsbæjar um viðurkenningu fyrir þróunar- eða nýsköpunar-
hugmynd. Nefndin auglýsir eftir tillögum – umsóknarfrestur til 15. október
Þróunar- og ferðamálanefnd gerir árlega tillögu til bæjarstjórnar Mosfellsbæjar um viðurkenningu fyrir þróunar- eða nýsköpunarhugmynd. Nefndin auglýsir eftir tillögum að þróunar- og nýsköpunarhugmyndum, verkefnum, vöru eða þjónustu og veitir 3 hugmyndum sérstaka viðurkenningu ásamt peningaverðlaunum.
Hæfur umsækjendi er :
a) Einstaklingur eða fyrirtæki með lögheimili í Mosfellsbæ
b) Einstaklingur eða fyrirtæki sem leggja fram þróunar- eða nýsköpunarhugmynd sem gagnast sérstaklega fyrirtækjum eða stofnunum í Mosfellsbæ.
Veittar eru viðurkenningar í þremur flokkum:
a) Hugmynd á frumstigi,
b) Hugmynd sem hefur fengið útfærslu og/eða mótast
c) Hugmynd sem búið er að útfæra og móta og fyrir liggur viðskiptaáætlun
Veittar verða þrjár viðurkenningar í hverjum flokki, en ein valin fremst og fær peningaverðlaun allt að 300.000 í hverjum flokki.
Hér getur þú lesið um reglur og samþykktir er varðar Þróunar- og nýsköpunarviðurkenningu Mosfellsbæjar
Umsóknarfrestur til 15.október 2012
Athugið að allar umsóknir skulu berast á rafrænu formi á mos[hjá]mos.is ef því verður ekki komið við má finna umsóknareyðublað og nánari upplýsingar hér á PDF formi . Hægt er að koma með umsóknina í Þjónustuver Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 2. hæð en einnig er hægt að fylla út rafrænt form hér neðar.