Í túninu heima 2015 fór fram um helgina. Dagskráin var stór og fjölbreytt. Vel viðraði á gesti hátíðarinnar sem fór afar vel fram. Metþátttaka var í Tindahlaupi Mosfellsbæjar en það voru 120 hlauparar sem spreyttu sig á tindunum. Góð markaðsstemning var bæði í Mosfellsdal og Álafosskvos ásamt líflegum skottmarkaði við Kjarna.
Í túninu heima 2015 fór fram um helgina. Dagskráin var stór og fjölbreytt. Vel viðraði á gesti hátíðarinnar sem fór afar vel fram. Metþátttaka var í Tindahlaupi Mosfellsbæjar en það voru 120 hlauparar sem spreyttu sig á tindunum. Góð markaðsstemning var bæði í Mosfellsdal og Álafosskvos ásamt líflegum skottmarkaði við Kjarna. Viðburðir í görðunum voru afar vel sóttir enda var þar engu til sparað. Flugsýningin Wings & Wheels fór ekki framhjá neinum og setti virkilega skemmtilegan svip á hátíðina.
Mosfellsbær þakkar öllum gestum fyrir komuna, íbúum, félagasamtökum og fyrirtækjum fyrir sitt framlag og styrktaraðilum fyrir að taka þátt í því að gera Í túninu heima 2015 eftirminnilega bæjarhátíð í Mosfellsbæ.
Hér má sjá myndasyrpu á mbl.is af hátíðinni.