Fjölskyldusvið Mosfellsbæjar óskar eftir starfsmanni með bílpróf til að annast liðveislu fyrir fertugan mann sem er MS-sjúkdóms. Markmið liðveislu er að veita persónulegan stuðning og aðstoð sem einkum miðar að því að rjúfa félagslega einangrun, t.d. aðstoð til að njóta menningar og félagslífs.
Fjölskyldusvið Mosfellsbæjar óskar eftir starfsmanni með bílpróf til að annast liðveislu fyrir fertugan mann sem er MS-sjúkdóms.
Markmið liðveislu er að veita persónulegan stuðning og aðstoð sem einkum miðar að því að rjúfa félagslega einangrun, t.d. aðstoð til að njóta menningar og félagslífs.
Um fjölbreytt hlutastarf er að ræða og verkefnið er áhugavert og lærdómsríkt. Vinnutíminn er sveigjanlegur, en algengast er að unnið sé að liðveislu seinnipart dags, á kvöldin eða um helgar. Starfið hentar því vel fyrir námsmenn eða sem aukavinna.
Ekki eru gerðar sérstakar kröfur um menntun, en mikilvægt er að liðveitendur búi yfir lipurð í mannlegum samskiptum, sveigjanleika, stundvísi og áreiðanleika.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Mosfellsbæjar og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Áhugasamir hafi samband við Vibeke Þ. Þorbjörnsdóttur deildarstjóra hjá fjölskyldusviði Mosfellsbæjar í síma 525-6700, netfang vibeke[hjá]mos.is.