Nágrannavarsla hefur fyrir löngu sannað sig sem mikilvægur hlekkur í að fækka glæpum og þá sérstaklega innbrotum á heimili, í bíla og almennum þjófnaði á eigum fólks.
Nágrannavarsla hefur fyrir löngu sannað sig sem mikilvægur hlekkur í að fækka glæpum og þá sérstaklega innbrotum á heimili, í bíla og almennum þjófnaði á eigum fólks. Þar sem nágrannavarsla er virk hefur skemmdarverkum einnig fækkað og dregið úr veggjakroti.
Nágrannavarsla felst í samvinnu nágranna um að gera umhverfi sitt og heimili öruggari. Með því móti er leitast við að draga úr innbrotum, þjófnaði og skemmdarverkum.
Nágrannavarsla hefur verið þekkt í áratugi og hefur víða verið sett upp með góðum árangri bæði á Íslandi og víða erlendis. Hægt er að fá upplýsingar að hugmyndinni “nágrannavörslu í Mosfellsbæ” hjá Sjóvá þar sem einnig er hægt að nálgast handbók um nágrannavörslu.