Yfir jól og áramót fellur oft til meira sorp frá heimilum en á öðrum tíma ársins.
Það getur því verið ágætt að vita hvenær tunnurnar eru tæmdar. En það verður sem hér segir: Bláa tunnan verður tæmd í Mosfellsbæ dagana 21. og 22. desember. Almennt sorp verður hreinsað á þorláksmessu og aðfangadag. Eftir áramót verður almenna sorpið svo hirt dagana 2. og 3. janúar og bláa tunnan 5. og 6. janúar. Þess má geta að jólapappír má fara í bláu tunnuna.
Við þetta má bæta að búið er að birta sorphirðudagatal blá- og grátunnu fyrir árið 2017. Sorphirðuverktaki tæmir tunnurnar á tveimur virkum dögum og er því miðað við að sorphirðu eigi að vera lokið síðari daginn.