Skólagarðarnir verða ekki strafræktir þetta árið. Sumarið 2011 var þeim breytt í fjölskyldugarða til að fá betri nýtingu á görðunum, þrátt fyrir það voru þeir mjög illa nýttir og var því tekin ákvörðun að bjóða ekki upp á skólagarða þetta árið en þess í stað verður hægt að leigja garð á sama stað á bakvið Varmárskóla.
Matjurtagarðar í Mosfellsbæ
Búið er að opna fyrir umsóknir um matjurtagarða í Mosfellsbæ.
Matjurtagarðar bæjarins verða sem fyrr staðsettir í Skarhólamýri og austan Varmárskóla, á sama stað og garðar hafa verið til útleigu undanfarin ár. Aðgengi að vatni verður við garðana.
Staðsetningu garða og fyrirkomulag má sjá á meðfylgjandi korti af Skarhólamýri og kort af matjurtagarði austan Varmá.
Leiguverð fyrir matjurtagarða er 5.000 kr. fyrir 100 fm garð og 2.500 kr. fyrir 50 fm garð.
Þeir sem óska eftir því að leigja áfram sama garð og í fyrra eru beðnir um að staðfesta leiguna með greiðslu fyrir 8. maí n.k. Eftir þann tíma verða allir garðar leigðir út til Mosfellinga skv. biðlista.
Þjónustuver Mosfellsbæjar, 2. hæð, Þverholti 2, annast eins og áður móttöku umsókna og tekur við greiðslum. Hægt er að hafa samband við þjónustuver Mosfellsbæjar í síma 525 6700 eða í gegnum netfangið mos[hjá]mos.is með ósk um að komast á biðlista um matjurtagarð.
Nánar um matjurtagarða hér
Skólagarðarnir verða ekki strafræktir þetta árið.
Sumarið 2011 var skólagörðunum breytt í fjölskyldugarða til að fá betri nýtingu á görðunum, þrátt fyrir það voru þeir mjög illa nýttir og var því tekin ákvörðun að bjóða ekki upp á skólagarða þetta árið en þess í stað verður hægt að leigja garð á sama stað austan Varmárskóla á sama hátt og er með garðana við Skarhólamýri.
Garðar verða tilbúnir til notkunar föstudaginn 25. maí n.k.
Einnig hefur náðst samkomulag við Reykjavíkurborg um að íbúar í Mosfellsbæ geti fengið leigða matjurtagarða í Skammadal og sér Umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkurborgar um útleiguna. Áhugasamir geta sett sig í samband við Karen Pálsdóttur í síma 411 1111, eða í netfangið matjurtagardar[hjá]reykjavik.is, og látið skrá sig á lista með ósk um garð.
Taka þarf fram að viðkomandi sé íbúi í Mosfellsbæ.
Umhverfissvið Mosfellsbæjar