Vindur er nú að ganga niður á höfuðborgarsvæðinu eins og spár gerðu ráð fyrir. Appelsínugul viðvörun tók gildi kl. 11 og rennur hún út kl. 14 eins og gefið var út í gær. Ekki eru lengur líkur á snjókomu og minnka því áhrif veðursins hratt.

Eins og við bentum á í tilkynningum okkar í gær þá eru veðurskilyrði ólík innan höfuðborgarsvæðisins bæði eftir sveitarfélögum og hverfum. Örfá hverfi voru í þokkalegu skjóli fyrir austanátt og veðrið náði sér því síður á strik þar.