Í ár verður Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ haldið 16. júní um allt land. Nú er um að gera að fara að huga að því að koma sér í form, kynna sér hlaupahópa í sínu hverfi og mæta fersk til leiks í byrjun júní. Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ sem haldið er í Mosfellsbæ hefst 11:00. Þrjár vegalengdir í boði, 3, 5, og 7 km.
Í ár verður Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ haldið 16. júní um allt land. Nú er um að gera að fara að huga að því að koma sér í form, kynna sér hlaupahópa í sínu hverfi og mæta fersk til leiks í byrjun júní.
Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ er haldið í Mosfellsbæ laugardaginn 16. Júní klukkan 11:00.
Þrjár vegalengdir í boði, 3, 5, og 7 km. SJÁ KORT AF HLAUPALEIÐUM HÉR
Þáttökugjald er 1250 krónur og innifalið í því er bolur og verðlaunapeningur ásamt kristal.
Forskráning í hlaupið er í Lágafellslaug og svo frá kl 10 á hlaupadaginn sjálfan einnig verður í boði andlitsmálun fyrir börnin og upphitun hefst kl 10:45.
Léttar og gómsætar veitingar verða seldar í Hlégarði ásamt því að frítt verður í Varmárlaug að loknu hlaupi.
Langömmur, ömmur, mömmur og dætur fjölmennum og höfum það gaman saman „ í Mosfellsbæ á hreyfingu“
Hittumst í Sjóvá Kvennahlaupinu 16. júní 2012 á 100 ára afmæli ÍSÍ
Tilgangurinn að efla heilsu kvenna
Nánari upplýsingar um hlaupið og hlaupastaði má finna á Facebook undir Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ og á www.sjova.is. Þar má einnig finna gagnasafn upplýsinga fyrir óvana hlaupara um matarræði, útbúnað og leiðir til þess að koma sér af stað í hreyfingu.