Menningarmálanefnd Mosfellsbæjar auglýsir eftir umsóknum eða ábendingum um bæjarlistamann Mosfellsbæjar. Bæjarlistamaður hlýtur menningarstyrk frá Mosfellsbæ og kynnir sig og verk sín innan Mosfellsbæjar á því ári sem hann er tilnefndur. Einungis einstaklingar, sem búsettir eru í Mosfellsbæ og hópar og samtök, sem starfa í bæjarfélaginu koma til greina.
Menningarmálanefnd Mosfellsbæjar auglýsir eftir umsóknum eða ábendingum um bæjarlistamann Mosfellsbæjar. Nefndin óskar árlega eftir tilnefningum eða ábendingum frá Mosfellingum um einstakling eða samtök listamanna í Mosfellsbæ, sem til greina koma að bera sæmdarheitið bæjarlistamaður ársins.
Einungis einstaklingar, sem búsettir eru í Mosfellsbæ og hópar og samtök, sem starfa í bæjarfélaginu koma til greina. Þá setur menningarmálanefnd það einnig sem skilyrði að tilnefndir einstaklingar eða hópar hafi verið virkir í listgrein sinni.
Bæjarlistamaður hlýtur menningarstyrk frá Mosfellsbæ og kynnir sig og verk sín innan Mosfellsbæjar á því ári sem hann er tilnefndur. Val á Bæjarlistamanni 2015 er tilkynnt í tengslum við bæjarhátíð Mosfellsbæjar, Í túninu heima.
Nefndin óskar hér með eftir tilnefningum eða ábendingum frá Mosfellingum um einstakling eða samtök listamanna í Mosfellsbæ, sem til greina koma að bera sæmdarheitið bæjarlistamaður ársins 2015.
Ábendingar þurfa að hafa borist Menningarmálanefnd Mosfellsbæjar í síðasta lagi 31. maí 2015.
Ábendingar skulu berast rafrænt hér í gegnum heimasíðu bæjarins.