Evrópsk samgönguvika, European Mobility Week, hefst í dag en vikan stendur yfir 16.-22. september ár hvert.
Evrópsk samgönguvika, European Mobility Week, hefst í dag en vikan stendur yfir 16.-22. september ár hvert. Tilgangur samgönguvikunnar er að vekja athygli á vistvænum samgöngum og hvetja almenning til að nýta sér almenningssamgöngur, hjólreiðar og aðra vistvæna fararkosti.
Mosfellsbær hefur verið virkur þátttakandi í samgönguvikunni undanfarin ár og staðið fyrir margs konar viðburðum í tilefni vikunnar, bæði í Mosfellsbæ og víðs vegar á höfuðborgarsvæðinu í samstarfi við nágrannasveitarfélögin. Af viðburðum í samgönguvikunni í ár má nefna BMX-hátíð á miðbæjartorginu, útgáfu nýs hjóla- og gönguleiðakorts fyrir Mosfellsbæ, uppsetningu leiðarvísa fyrir hjólreiðastíga, vígslu rafhleðslustöðva og málþing um vistvænar samgöngur.
Mosfellingar eru hvattir til að taka þátt í þessu árlega átaki, draga fram hjólið og njóta góðrar útiveru og heilsusamlegrar hreyfingar.