Vegna viðgerðar verður rafmagnslaust við Kvíslartungu, Leirvogstungu og Laxatungu 23. mars frá kl. 09:00 til 16:00.
Íbúum er bent á að slökkva á þeim rafmagnstækjum sem ekki slökkva á sér sjálf og geta valdið tjóni þegar rafmagn kemur á að nýju. Það á sérstaklega við um eldavélar, mínútugrill og fleiri hitunartæki. Eins er gott að slökkva á viðkvæmum tækjum á borð við sjónvörp.
Gætið þess að hafa kæli- og frystiskápa ekki opna lengur en þörf krefur.
Starfsfólk Veitna biðst velvirðingar á óþægindum vegna þessa.