Vegna vinnu við dreifikerfi verður rafmagnslaust við Aðaltún 6-26, Lækjartún 1-13, Melgerði og Lágafellskirkju í dag, fimmtudaginn 2. apríl, kl. 9:00-11:00.
Íbúum er bent á að slökkva á þeim rafmagnstækjum, sem ekki slökkva ásér sjálf og geta valdið tjóni þegar rafmagn kemur á að nýju. Það ásérstaklega við um eldavélar, mínútugrill og fleiri hitunartæki. Eins eríbúum ráðlagt að slökkva á viðkvæmum tækjum á borð við sjónvörp.
Gætið þess að hafa kæli- og frystiskápa ekki opna lengur en þörf krefur.
Starfsfólk Veitna biðst velvirðingar á óþægindum vegna þessa.