Menningarmálanefnd Mosfellsbæjar auglýsir eftir ábendingu um bæjarlistamann Mosfellsbæjar 2011. Bæjarlistamanni er jafnframt veittur menningarstyrkur og verður útnefning að vanda tilkynnt í tengslum við bæjarhátíð Mosfellsbæjar, Í túninu heima.

Nefndin óskar hér með eftir tilnefningum eða ábendingum frá Mosfellingum um einstakling eða samtök listamanna í Mosfellsbæ, sem til greina koma að bera sæmdarheitið bæjarlistamaður ársins 2011.
Einungis einstaklingar, sem búsettir eru í Mosfellsbæ og hópar og samtök, sem starfa í bæjarfélaginu koma til greina. Þá setur menningarmálanefnd það einnig sem skilyrði að tilnefndir einstaklingar eða hópar hafi verið virkir í listgrein sinni.
Ábendingar þurfa að hafa borist Menningarmálanefnd Mosfellsbæjar í síðasta lagi 17. júní 2011 og skulu sendast á:
Menningarsvið Mosfellsbæjar
Bæjarskrifstofum Mosfellsbæjar
Þverholti 2
270 Mosfellsbær
eða með tölvupósti á mos@mos.is