Umhverfisnefnd Mosfellsbæjar óskar eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenninga Mosfellsbæjar fyrir árið 2019. Hægt er að tilnefna einstaklinga, garða, götur, stofnanir, félagasamtök og fyrirtæki í Mosfellsbæ.
Umhverfisnefnd Mosfellsbæjar óskar eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenninga Mosfellsbæjar fyrir árið 2019.
Umhverfisnefnd veitir árlega umhverfisviðurkenningar völdum aðilum í Mosfellsbæ sem skarað hafa fram úr í umhverfismálum.
Óskað er eftir tilnefningum frá almenningi um hver hljóta skuli þessa viðurkenningu nú í ár.
Hægt er að tilnefna einstaklinga, garða, götur, stofnanir, félagasamtök og fyrirtæki í Mosfellsbæ.
Tilnefningar skulu berast fyrir 1. ágúst 2019.
Umhverfisnefnd mun fara yfir innsendar tilnefningar að því loknu og veita þeim sem verða fyrir valinu viðurkenningar við sérstaka athöfn á bæjarhátíðinni Í túninu heima í lok ágúst.