Um er að ræða framlengingu á götu við Desjamýri ofan við Hlíðartúnhverfi. Vakin er athygli að aðkoma verkaka að liggur fram hjá grónu hverfi og því skal verktaki taka tillit til þess.
Umhverfissvið Mosfellsbæjar óskar eftir tilboðum í verkið: “Desjamýri 11 – 14, gatnaferð”.
Um er að ræða framlengingu á götu við Desjamýri ofan við Hlíðartúnshverfi. Vakin er athygli á að aðkoma verktaka liggur framhjá grónu hverfi og því skal verktaki taka tillit til þess.
Helstu verkþættir eru: Gatnagerð og veitukerfi í Desjamýri 11 – 14. Ljúka skal uppbyggingu gatna, gangstíga og leggja vatns-, holræsa- og hitaveitulagnir auk heimtauga og tengja þær við núverandi veitukerfum.
Helstu magntölur eru:
- Uppgröftur og endurfylling/brottakstur – 10.300 m3
- Losun klappar – 400 m3
- Aðflutt fylling – 10.000 m3
- Malbik – 1.400 m2
- Skurðsnið/strengjaskurðir – 600 m
- Fráveitulagnir 150 – 300 mm – 570 m
- Hitaveitulagnir – 380 m
- Vatnsveitulagnir – 820 m
- Ljósastólpar – 8 stk.
Verkinu skal að fullu lokið 1. febrúar 2020.
Útboðsgögn verða afhent í afgreiðslu bæjarskrifstofa Mosfellbæjar, Þverholti 2, 2. hæð frá og með kl. 10:00 á þriðjudeginum 25. júní 2019.
Tilboðum skal skilað á sama stað, Bæjarskrifstofa Mosfellsbæjar, eigi síðar en föstudaginn 19. júlí 2019 kl. 13:00 og þau opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.