Lýðræðis- og mannréttindanefnd Mosfellsbæjar óskar eftir tilnefningum til jafnréttisviðurkenningar Mosfellsbæjar fyrir árið 2019.
Lýðræðis- og mannréttindanefnd Mosfellsbæjar óskar eftir tilnefningum til jafnréttisviðurkenningar Mosfellsbæjar fyrir árið 2019. Tilgangurinn er að veita viðurkenningu fyrir vel unnin störf að jafnréttismálum í samræmi við jafnréttisáætlun Mosfellsbæjar.
Við hvetjum ykkur til að fara inn á mos.is/jafnretti og senda tilnefningar ásamt rökstuðningi fyrir 19. ágúst næstkomandi.
Útnefning lýðræðis- og mannréttindanefndar verður kynnt á Jafnréttisdegi Mosfellsbæjar, þann 19. september næstkomandi.