Tilboðsfrestur vegna útboðsins Varmárvöllur – Nýtt gervigrasyfirborð rann út þann 2. mars kl. 14:00.
Þrír aðilar sendu inn tilboð áður en skilafrestur rann út en það voru Altis ehf. sem sendi inn tvö tilboð, Metatron ehf. sem sendi inn þrjú tilboð og Leiktæki og sport ehf. sem sendi inn eitt tilboð.
Eftirfarandi tilboð bárust:
- Metatron ehf., tilboð 1: 89.743.207 – 84,4%
- Metatron ehf., tilboð 2: 93.866.251 – 88,3%
- Leiktæki og sport ehf.: 97.147.041 – 91,4%
- Metatron ehf., tilboð 3: 98.888.099 – 93,0%
- Altis ehf., tilboð 1: 101.374.662 – 95,4%
- Altis ehf., tilboð 2: 114.548.654 – 107,7%
Kostnaðaráætlun: 106.312.400 – 100,0%
Tilboðsfjárhæðir eru hér birtar með fyrirvara um yfirferð tilboða m.t.t. hæfis bjóðenda og réttra útreikninga í tilboðsskrá. Tilboð allra bjóðenda verða nú yfirfarin m.t.t. þessa og niðurstaða útboðs tilkynnt í kjölfarið.