Tilboðsfrestur vegna útboðsins Reykjakot – endurnýjun leikskólalóðar rann út þann 8. mars kl. 14:00.
Sjö aðilar sendu inn tilboð áður en skilafrestur rann út en það voru Garðaþjónusta Íslands ehf., Grjótavík ehf., Grjótgás ehf., Fagurverk ehf., Hellur og lagnir ehf., Mostak ehf, Vargur ehf.
Eftirfarandi tilboð bárust:
- Vargur ehf. – 28.504.450 – 70,5%
- Mostak ehf. – 31.521.332 -78,0%
- Grjótavík ehf. – 36.032.500 – 89,1%
- Fagurverk ehf. – 38.568.650 – 95,4%
- Hellur og lagnir ehf. – 39.506.550 – 97,7%
- Grjótgás ehf. – 39.983.450 – 98,9%
- Garðaþjónusta Íslands ehf. – 48.501.896 – 119,9%
Kostnaðaráætlun: 40.435.265 – 100,0%
Tilboðsfjárhæðir eru hér birtar með fyrirvara um yfirferð tilboða m.t.t. hæfis bjóðenda og réttra útreikninga í tilboðsskrá. Tilboð allra bjóðenda verða nú yfirfarin m.t.t. þessa og niðurstaða útboðs tilkynnt í kjölfarið.
Tengt efni
Opnun útboðs: Nýr leikskóli í Helgafellshverfi í Mosfellsbæ – Uppsteypa og fullnaðarfrágangur
Tilboðsfrestur vegna útboðsins Nýr leikskóli í Helgafellshverfi í Mosfellsbæ – Uppsteypa og fullnaðarfrágangur rann út þann 19. maí kl. 14:00.
Opnun útboðs: Kvíslarskóli – Endurnýjun glugga, endurútboð
Tilboðsfrestur vegna útboðsins Kvíslarskóli – innrétting 1. hæðar rann út þann 17. apríl kl. 11:00.
Opnun útboðs: Reykjavegur - Umferðaröryggi
Tilboðsfrestur vegna útboðsins Reykjavegur – Umferðaröryggi rann út þann 15. mars kl. 11:00.