Tekið verður á móti skráningum í Vinnuskólann frá 17. mars – 04. apríl í gegnum íbúagátt Mosfellsbæjar. Vinnuskóli Mosfellsbæjar er starfræktur fyrir nemendur í 8., 9. og 10. bekk í grunnskólum Mosfellsbæjar. Skráning nemenda í vinnuskólann stendur frá 17. mars til 04. apríl. Skráningin fer fram í gegn um íbúagátt Mosfellsbæjar . Þeir sem sækja um fyrir þann tíma geta treyst því að fá vinnu í sumar, en ekki er víst að hægt sé að verða við öllum beiðnum um vinnutímabil.
Tekið verður á móti skráningum í Vinnuskólann frá 17. mars – 04. apríl í gegnum Íbúagátt Mosfellsbæjar.
Vinnuskóli Mosfellsbæjar er starfræktur fyrir nemendur í 8., 9. og 10. bekk í grunnskólum Mosfellsbæjar. Skráning nemenda í vinnuskólann stendur frá 17. mars til 04. apríl. Skráningin fer fram í gegn um íbúagátt Mosfellsbæjar . Þeir sem sækja um fyrir þann tíma geta treyst því að fá vinnu í sumar, en ekki er víst að hægt sé að verða við öllum beiðnum um vinnutímabil.
Starfsemi Vinnuskólanns hefst 09. júní og starfar til 12. ágúst.
NÁNARI UPPLÝSINGAR
Daglegur vinnutími og tímabil fer eftir aldri nemenda sem má sjá nánar hér á síðu um Vinnuskólann.
Allir umsækjendur fá tölvupóst með upplýsingum um vinnutíma og laun fyrir 6. maí. Þeir sem sóttu um en hafa ekki fengið póst á þeim tíma vinsamlegast hafið samband í síma 5 666 058 eða með því að senda tölvupóst á bolid[hja]mos.is eða edda[hja]mos.is
Vinnuskólinn heyrir undir Fræðslu og fristundasvið Mosfellsbæjar en dagleg stjórnun hans er í höndum tómstundafulltrúa, Eddu Davíðsdóttur, sem veitir allar frekari upplýsingar í síma 525 6700 eða email: edda[hja]mos.is