Tekið verður á móti skráningum í Vinnuskólann frá 19. mars – 06. apríl í gegnum íbúagátt Mosfellsbæjar. Vinnuskóli Mosfellsbæjar er starfræktur fyrir nemendur í 8., 9. og 10. bekk í grunnskólum Mosfellsbæjar. Þeir sem sækja um fyrir þann tíma geta treyst því að fá vinnu í sumar, en ekki er víst að hægt sé að verða við öllum beiðnum um vinnutímabil.
Tekið verður á móti skráningum í Vinnuskólann frá 19. mars – 06. apríl í gegnum íbúagátt Mosfellsbæjar.
Vinnuskóli Mosfellsbæjar er starfræktur fyrir nemendur í 8., 9. og 10. bekk í grunnskólum Mosfellsbæjar. Skráning nemenda í vinnuskólann stendur frá 19. mars til 06. apríl. Skráningin fer fram í gegn um íbúagátt Mosfellsbæjar . Þeir sem sækja um fyrir þann tíma geta treyst því að fá vinnu í sumar, en ekki er víst að hægt sé að verða við öllum beiðnum um vinnutímabil.
Starfsemi Vinnuskólanns hefst 11. júní og starfar til 14. ágúst.
Daglegur vinnutími og tímabil fer eftir aldri nemenda sem má sjá nánar hér á síðu um Vinnuskólann.
Allir umsækjendur fá tölvupóst með upplýsingum um vinnutíma og laun fyrir 9. maí. Þeir sem sóttu um en hafa ekki fengið póst á þeim tíma vinsamlegast hafið samband í síma 5 666 058 eða með því að senda tölvupóst á bolid[hja]mos.is eða edda[hja]mos.is
Vinnuskólinn heyrir undir menningarsvið Mosfellsbæjar en dagleg stjórnun hans er í höndum tómstundafulltrúa, Eddu Davíðsdóttur, sem veitir allar frekari upplýsingar í síma 525 6700 eða email: edda[hja]mos.is