Líkt og undanfarin ár verður Skólaskrifstofa Mosfellsbæjar með opin hús í vetur fyrir alla þá er koma að uppeldi barna með einum eða öðrum hætti. Hvert kvöld hefst á stuttri fræðslu um efni kvöldsins og lýkur á spurningum og samræðum að því loknu. Opnu húsin eru haldin í Listasal Mosfellsbæjar í Kjarna, síðasta miðvikudagskvöld í mánuði kl. 20:00-21:00 nema annað sé auglýst sérstaklega.

Á opnum húsum er sjónum beint að hagnýtum ráðum við uppeldi og umgengni við börn og unglinga.
28. október | 2015 | Umferðarreglurnar á netinu | |
25. nóvember | 2015 | Meðvirkni barna | |
27. janúar | 2016 | Ofmetnaður foreldra | |
24. febrúar | 2016 | Ofverndun barna | |
27. apríl | 2016 | Próf og prófkvíði |
Auglýst með fyrirvara um breytingar.
Foreldrar/forráðamenn, starfsmenn leik- og grunnskóla, þjálfarar, frístundaleiðbeindur, ömmur, afar og aðrir bæjarbúar, tökum þessi kvöld frá, hittumst og eigum samræður um málefni er varða börn og unglinga í Mosfellsbæ.
Kveðja, Skólaskrifstofa Mosfellsbæjar