Senn líður að fyrsta Opnu húsi hjá Skólaskrifstofu en líkt og undanfarin 11 ár verður Skólaskrifstofa Mosfellsbæjar með opin hús í vetur fyrir alla þá er koma að uppeldi barna með einum eða öðrum hætti. Hvert kvöld hefst á stuttri fræðslu um efni kvöldsins og lýkur á spurningum og samræðum að því loknu. Foreldrar/forráðamenn, starfsmenn leik- og grunnskóla, frístundaleiðbeindur, þjálfarar, ömmur, afar og aðrir bæjarbúar, tökum þessi kvöld frá, hittumst og eigum samræður um málefni er varða börn og unglinga í Mosfellsbæ.
Líkt og undanfarin 11 ár verður Skólaskrifstofa Mosfellsbæjar með opin hús í vetur fyrir alla þá er koma að uppeldi barna með einum eða öðrum hætti.
Hvert kvöld hefst á stuttri fræðslu um efni kvöldsins og lýkur á spurningum og samræðum að því loknu.
OPNU HÚSIN eru haldin í Listasal Mosfellsbæjar í Kjarna, síðasta miðvikudagskvöld í mánuði kl. 20:00-21:00 nema annað sé auglýst sérstaklega.
Að þessu sinni verður sjónum beint að hagnýtum ráðum við uppeldi og umgengni við börn og unglinga.
29. október 2014 | Svefn og svefnvandi | |
26. nóvember 2014 | Matvendni – hvað er til ráða ? | |
28. janúar 2015 | Kerru og keyrða kynslóðin | |
25. febrúar 2015 | Kroppurinn er kraftaverk | |
25. mars 2015 | Máttur tengslanna | |
(Auglýst með fyrirvara um breytingar) |
Foreldrar/forráðamenn, starfsmenn leik- og grunnskóla, frístundaleiðbeindur, þjálfarar, ömmur, afar og aðrir bæjarbúar, tökum þessi kvöld frá, hittumst og eigum samræður um málefni er varða börn og unglinga í Mosfellsbæ.
Kveðja, Skólaskrifstofa Mosfellsbæjar