Líkt og undanfarin 9 ár verður Skólaskrifstofa Mosfellsbæjar með opin hús í vetur fyrir alla þá er koma að uppeldi barna. Hvert kvöld hefst á stuttri fræðslu um efni kvöldsins og lýkur á spurningum og samræðum að því loknu. Opnu húsin eru haldin í Listasal Mosfellsbæjar í Kjarna, síðasta miðvikudagskvöld í mánuði kl. 20:00-21:00 nema annað sé auglýst sérstaklega. Gefnar hafa verið út nýjar aðalnámskrár leik- og grunnskóla og er í þeim gengið út frá 6 lykilþáttum:
Líkt og undanfarin 9 ár verður Skólaskrifstofa Mosfellsbæjar með opin hús í vetur fyrir alla þá er koma að uppeldi barna. Hvert kvöld hefst á stuttri fræðslu um efni kvöldsins og lýkur á spurningum og samræðum að því loknu. Opnu húsin eru haldin í Listasal Mosfellsbæjar í Kjarna, síðasta miðvikudagskvöld í mánuði kl. 20:00-21:00 nema annað sé auglýst sérstaklega.
Gefnar hafa verið út nýjar aðalnámskrár leik- og grunnskóla og er í þeim gengið út frá 6 lykilþáttum: læsi, sjálfbærni, jafnrétti, sköpun, heilbrigði og velferð, lýðræði og mannréttindi.
Í vetur verður á opnum húsum sjónum beint að þessum þáttum og hvernig þeir snúa að foreldrum/forráðamönnum.
31. október 2012 – Vitund um læsi í víðum skilningi
28. nóvember 2012 – Hefur barnið þitt áhrif á eigið líf?
Mannréttindi barna og þátttaka í lýðræði.
30. janúar 2013 – Það verður tamast sem í æskunni nemur
Heilbrigði og velferð
27. febrúar 2013 – Sjálfbærni, ákall um ábyrgð og áhuga
19. mars 2013 – Jafnréttismenntun, tækifæri fyrir alla
23. apríl 2013 – Enn meira gaman
Umræður á opnu húsi um sköpun, flæði og gleði í lífi barna, heima og heiman !
Auglýst með fyrirvara um breytingar.
Foreldrar/forráðamenn, starfsmenn leik- og grunnskóla og aðrir bæjarbúar,
tökum þessi kvöld frá, hittumst og eigum samræður um málefni er varða börn og unglinga í Mosfellsbæ.
Skólaskrifstofa Mosfellsbæjar