Þriðjudaginn 30. apríl kl. 20:00 var opið hús hjá Skólaskrifstofu Mosfellsbæjar. Í nýjum aðalnámskrám leik- og grunnskóla er horft til 6 grunnþátta sem eru læsi, sjálfbærni, heilbrigði og velferð, lýðræði og mannréttindi, jafnrétti og sköpun. Á síðasta opna húsi þessa vetrar höfum við fengið Ásu Björk Snorradóttur myndlistarkennara til að fjalla um Sköpun og sköpunargleði í námi og starfi í leik- og grunnskóla.
Þriðjudaginn 30. apríl kl. 20:00 var opið hús hjá Skólaskrifstofu Mosfellsbæjar.
Í nýjum aðalnámskrám leik- og grunnskóla er horft til 6 grunnþátta sem eru læsi, sjálfbærni, heilbrigði og velferð, lýðræði og mannréttindi, jafnrétti og sköpun.
Á síðasta opna húsi þessa vetrar höfum við fengið Ásu Björk Snorradóttur myndlistarkennara til að fjalla um Sköpun og sköpunargleði í námi og starfi í leik- og grunnskóla.
Ása Björk hefur haldið marga bráðskemmtilega fyrirlestra á höfuðborgarsvæðinu á undanförnum árum og ætlar að ræða um sköpun og skapandi starf í öllum námsgreinum, um verkfærin til sköpunar sem við færum börnum og unglingum upp í hendur eða hvernig okkur mistekst að kenna þeim á skapandi verkfæri. Sköpun er námsþáttur í öllu skólastarfi, ekki bara listgreinum.Það þarf skapandi hugsun til að leysa úr þrautum bæði í skóla og í lífinu.
Hér er á ferðinni skemmtilegur fyrirlestur og vonandi geta foreldrar fræðst um hvað þeir geti gert til að efla skapandi hugsun heima jafnt og í skóla.
Sjá auglýsingu hér (.pdf 245 kb )
Opnu húsin hjá Skólaskrifstofu fara fram í Listasal Mosfellsbæjar. Athugið að gengið er inn austan megin (Háholtsmegin.
Aðgangur er ókeypis og öllum opinn.
Skólaskrifstofa Mosfellsbæjar