Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
20. febrúar 2019

    Mið­viku­dag­inn 27. fe­brú­ar er kom­ið að þriðja opna húsi vetr­ar­ins hjá Fræðslu­skrif­stofu Mos­fells­bæj­ar. Að þessu sinni verð­ur fyr­ir­lest­ur­inn hald­inn í Fram­halds­skóla Mos­fells­bæj­ar og hefst kl. 20:00.

    Á opn­um hús­um hjá Fræðslu- og frí­stunda­sviði er lögð áhersla á hag­nýt ráð varð­andi upp­eldi og sam­skipti við börn og ung­linga. Ráð sem for­eldr­ar, systkin, amma og afi, þjálf­ar­ar, kenn­ar­ar og all­ir þeir sem koma að upp­vexti barna og ung­linga geta nýtt sér.

    Stein­unn Anna Sig­ur­jóns­dótt­ir sál­fræð­ing­ur mun fjalla um kvíða hjá börn­um og ung­ling­um. Marg­ir for­eldr­ar hafa mikl­ar áhyggj­ur af líð­an barna í dag og kvíði virð­ist vera alls­stað­ar
    Stein­unn Anna mun fara yfir or­sak­ir kvíða og hvað þurfi að hafa í huga til þess að sporna við að kvíði verði að vanda­máli hjá börn­um og ung­ling­um. Far­ið verð­ur yfir al­geng mistök sem for­eldr­ar gera þeg­ar kem­ur að kvíða hjá börn­um og leit­ast við að gefa hag­nýt og upp­byggi­leg ráð við kvíða.

    Stein­unn Anna er ein af stofn­end­um Litlu Kvíða­með­ferð­ar­stöðv­ar­inn­ar sem sér­hæf­ir sig í með­ferð barna og ung­linga með kvíð­arask­an­ir og tengd vanda­mál. Hún hef­ur einn­ig sinnt kennslu í með­ferð­um barna og ung­linga í HÍ og HR, auk þess að vera vin­sæll fyr­ir­les­ari og pistla­höf­und­ur.

    Opnu hús­in hjá Fræðslu- og frí­stunda­sviði eru hald­in síð­asta mið­viku­dag í mán­uði fjór­um sinn­um yfir vet­ur­inn frá klukk­an 20–21.

    Stað­setn­ing aug­lýst hverju sinni.

     

    Netspjall

    Opið virka daga
    mán., þri., fim. 8:00-16:00
    mið. 8:00-18:00
    fös. 8:00-14:00

    Þjónustuver 525-6700

    Opið virka daga
    mán., þri., fim. 8:00-16:00
    mið. 8:00-18:00
    fös. 8:00-14:00