Laugardaginn 9. júní er alþjóðlegi skjaladagurinn sem skjalasöfn um allan heim taka þátt í með einum eða öðrum hætti. Á þessum degi er vakin athygli á mikilvægi starfs skjalasafna og mikilvægi þess að skjöl varðveitist með tryggilegum hætti.
Á Íslandi taka héraðsskjalasöfn landsins þátt í alþjóðlega skjaladeginum. Héraðsskjalasöfnin eru 20 talsins um land allt. Meginhlutverk þeirra er að safna, varðveita og afgreiða úr skjölum bæjar- og sveitastjórna og stofnana þeirra og fyrirtækja. Jafnframt taka þau til varðveislu skjöl einstaklinga, félaga og fyrirtækja á safnasvæðinu. Héraðsskjalasöfnin varðveita því söguna heima í héraði og gegna margvíslegu menningarlegu og stjórnsýslulegu hlutverki.
Þau sveitarfélög sem ekki eiga aðila að héraðsskjalasafni, til dæmis sveitarfélög á Suðurnesjum, Snæfellsnesi, Hafnarfjörður og Garðabær eru skilaskyld til Þjóðskjalasafns Íslands og íbúar þeirra þurfa að sækja þjónustu til Reykjavíkur.
Héraðsskjalasöfnin tuttugu eiga með sér gott og öflugt samstarf. Félag héraðsskjalavarða á Íslandi hefur staðið fyrir fræðslu fyrir starfsmenn héraðsskjalasafna og sveitarfélaga, haldið málþing, sýningar og verið með margvísleg samstarfsverkefni. Eitt af samstarfsverkefnunum var í skjalamálum grunnskóla og hafa flestir grunnskólar landsins bætt skjalavörslu sína og afhent eða undirbúið afhendingu eldri skjala til viðkomandi héraðsskjalasafns.
Félagið hefur staðið fyrir þremur herferðum í söfnun einkaskjalasafna. Það fyrsta var átak í söfnun skjala kvenfélaga í samstarfi félagsins og Kvenfélagasambands Íslands. Það skilaði góðum árangri og fjöldi skjalasafna barst héraðsskjalasöfnum meðan á átakinu stóð og eftir það. Næsta átak var að safna skjölum sóknarnefnda í samstarfi við embætti biskups Íslands. Þau skjöl eru ennþá að berast söfnunum. Þá hófst í apríl átak í söfnun skjala íþróttafélaga um land allt í samstarfi við Íþrótta- og ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) og mun það standa allt þetta 100 ára afmælisár ÍSÍ.
Héraðsskjalasöfnin munu flest verða með opið hús föstudaginn 8. júní eða minnast dagsins með öðrum hætti. Þau munu kynna gestum starfsemi safnanna og afrakstur ofangreindra átaka í söfnun skjala. Þann dag er Söguþing 2012 í fullum gangi en Félag héraðsskjalavarða og nokkur héraðsskjalasöfn eru meðal styrktaraðila þingsins.
Héraðsskjalasafn Mosfellsbæjar verður með opið hús á föstudaginn 8. júní á milli kl. 10 – 12 og býður gestur upp á kaffi og kruðerí, í húsakynnum sínum í kjallara Þverholts 2, Mosfellsbæ.
Tilvalið að kíkja við, spjalla og kynna sér starfsemi safnsins og eru allir velkomnir. Safnið tekur á móti einkaskjalasöfnum og öðrum afhendingum, þennan dag eins og aðra daga.
Önnur héraðsskjalasöfn hafa kynnt að þau verði með opið hús þennan dag föstudaginn 8. júní og bjóði gestum upp á kaffi
Borgarskjalasafn Reykjavíkur, Tryggvagötu 15, 3. hæð. Opið kl. 14-16.
Héraðsskjalasafn Árnesinga, Austurvegi 2, Selfoss. Opið kl. 14-16.
Héraðsskjalasafn Kópavogs, Digranesvegi 7, Kópavogi. Opið kl. 14-16.
Héraðsskjalasafn Þingeyinga, Safnahúsinu, Stóragarði 17, Húsavík. Opið kl. 14-16.