Ökumenn í Mosfellsbæ eru hvattir til að sýna aðgát í umferðinni. Skólarnir eru að hefjast og fjöldi barna að feta sín fyrstu skref í umferðinni ein síns liðs.
Skipulags- og byggingarnefnd Mosfellsbæjar beinir þeim tilmælum til ökumanna að sýna sérstaka aðgát í umferðinni nú þegar skólar hefjast að nýju eftir sumarleyfi. Einnig hvetur nefndin sem flesta til þess að fara fótgangandi í skóla.
Bókun nefndarinnar á síðasta fundi hennar er svohljóðandi:
“Nú eru grunnskólar bæjarins að hefja störf að nýju og fjöldi skólabarna er nú að hefja skólagöngu í fyrsta sinn og því að feta sín fyrstu sín fyrstu skref í umferðinni ein síns liðs. Nefndin beinir þeim tilmælum til ökumanna að fara að öllu með gát og gæta sérstaklega að litlum einstaklingum sem eru að læra á umferðina. Nefndin leggur áherslu á að sem flestir gangi til skóla, enda er það bæði holl og góð hreyfing auk þess að draga úr umferð við skólana.”