Mosfellsbær hefur nú látið prenta að nýju hjóla- og göngustígabækling með uppfærðum hjólaleiðum í bænum.
Mosfellsbær hefur nú látið prenta að nýju hjóla- og göngustígabækling með uppfærðum hjólaleiðum í bænum. Bæklinga fyrir hjóla- og gönguleiðir er einnig að finna á vef Mosfellsbæjar.
Fjarlægðir innan þéttbýlis Mosfellsbæjar eru að jafnaði ekki langar. Því ættu hjólreiðar og ganga að vera ákjósanlegur ferðamáti innanbæjar.