Frá og með 11. febrúar nk. tekur gildi nýtt fyrirkomulag viðtalstíma hjá byggingarfulltrúa og skipulagsfulltrúa.
Frá og með 11. febrúar nk. tekur gildi nýtt fyrirkomulag viðtalstíma hjá byggingarfulltrúa og skipulagsfulltrúa.
Í stað fastra viðtalstíma á bæjarskrifstofum alla virka morgna nema föstudaga milli kl. 11:00 og 12:00 eins og verið hefur, verður hægt að panta viðtalstíma hjá starfsfólki embætta skipulagfulltrúa og byggingarfulltrúa með því að senda tölvupóst þar sem fram kemur erindi viðtalsins.
Símaviðtalstímar verða áfram eins og verið hefur alla virka daga nema föstudaga á milli kl. 10:00 og 11:00 í síma 525-6700.