Mosfellsbær og Ísorka undirrituðu í sumar samkomulag til þriggja ára um uppsetningu og rekstur þriggja hleðslustöðva í Mosfellsbæ.
Mosfellsbær og Ísorka undirrituðu í sumar samkomulag um til þriggja ára um uppsetningu og rekstur þriggja hleðslustöðva í Mosfellsbæ. Rafhleðslustöðvar hafa verið settar upp við íþróttamiðstöðvarnar Lágafelli og við Varmá, og þriðja stöðin mun koma upp við Framhaldsskólann í Mosfellsbæ síðar í haust. Stöðvarnar eru snúrulausar og eru 2×22 kW AC og eiga að geta hlaðið allar gerðir rafbíla á Íslandi.
Bubbi Mortens tónlistarmaður vígði rafhleðslustöðina við íþróttamiðstöðina við Varmá og fékk á sama tíma afhenda fyrstu rafhleðslusnúruna fyrir stöðina. Bubbi hefur verið stoltur eigandi rafbíls í talsverðan tíma og telur rafbíla klárlega vera framtíðina í bílasamgöngum.