Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
15. september 2017

    Mos­fells­bær og Ísorka und­ir­rit­uðu í sum­ar sam­komulag til þriggja ára um upp­setn­ingu og rekst­ur þriggja hleðslu­stöðva í Mos­fells­bæ.

    Mos­fells­bær og Ísorka und­ir­rit­uðu í sum­ar sam­komulag um til þriggja ára um upp­setn­ingu og rekst­ur þriggja hleðslu­stöðva í Mos­fells­bæ. Raf­hleðslu­stöðv­ar hafa ver­ið sett­ar upp við íþróttamið­stöðv­arn­ar Lága­felli og við Varmá, og þriðja stöðin mun koma upp við Fram­halds­skól­ann í Mos­fells­bæ síð­ar í haust. Stöðv­arn­ar eru snúru­laus­ar og eru 2×22 kW AC og eiga að geta hlað­ið all­ar gerð­ir raf­bíla á Ís­landi.

    Bubbi Mortens tón­list­ar­mað­ur vígði raf­hleðslu­stöð­ina við íþróttamið­stöð­ina við Varmá og fékk á sama tíma af­henda fyrstu raf­hleðslu­snúr­una fyr­ir stöð­ina. Bubbi hef­ur ver­ið stolt­ur eig­andi raf­bíls í tals­verð­an tíma og tel­ur raf­bíla klár­lega vera fram­tíð­ina í bíla­sam­göng­um.

    Netspjall

    Opið virka daga
    mán., þri., fim. 8:00-16:00
    mið. 8:00-18:00
    fös. 8:00-14:00

    Þjónustuver 525-6700

    Opið virka daga
    mán., þri., fim. 8:00-16:00
    mið. 8:00-18:00
    fös. 8:00-14:00