Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
29. september 2017

    Að veita þjón­ustu sem mæt­ir þörf­um, vera til stað­ar fyr­ir fólk og þróa sam­fé­lag­ið í rétta átt er leið­ar­ljós­ið í stefnu og fram­tíð­ar­sýn Mos­fells­bæj­ar sem bæj­ar­ráð sam­þykkti á fundi sín­um 20. júlí sl.

    Stefn­an er afrakst­ur vinnu sem stóð yfir frá því snemma í vor og skipt­ist stefn­an í þrjá áherslu­flokka og níu áhersl­ur sem munu móta og stýra starf­semi Mos­fells­bæj­ar til næstu ára. Að sögn Har­ald­ar Sverris­son­ar bæj­ar­stjóra var Mos­fells­bær fyrst sveit­ar­fé­laga hér­lend­is til þess að marka sér heild­stæða stefnu um það hvern­ig starfs­menn leysa sín verk­efni í þágu íbúa og hvern­ig þeir styðja kjörna full­trúa við að koma stefnu mála­flokka í fram­kvæmd. Sú stefnu­mörk­un átti sér stað árið 2007 og kom­inn var tími til þess að end­ur­taka leik­inn.

    Mos­fells­bær er einn vinnu­stað­ur

    „Gildi Mos­fells­bæj­ar voru mót­uð árið 2007 og hafa nýst okk­ur við að búa til einn vinnustað,“ seg­ir Har­ald­ur Sverris­son bæj­ar­stjóri. „Við lít­um á bæj­ar­skrif­stof­urn­ar og stofn­an­ir bæj­ar­ins sem heild og þá er gott að vinna með sam­eig­in­leg gildi. Við unn­um sam­an að því að þróa gild­in okk­ar áfram haust­ið 2016 og lét­um þau því halda sér í þeirri vinnu sem fram fór í vor en mót­uð­um í sam­vinnu við starfs­menn og stjórn­end­ur fram­tíð­ar­sýn og áhersl­ur til árs­ins 2027.“

    Snjöll, með­vit­uð og sjálf­bær

    „Áherslu­flokk­arn­ir í stefnu Mos­fells­bæj­ar eru rétt þjón­usta, flott fólk og stolt sam­fé­lag. Und­ir þess­um flokk­um setj­um við fram níu áhersl­ur. Við vilj­um vera per­sónu­leg, skil­virk og snjöll. Einn­ig sam­starfs­fús, fram­sækin og með­vit­uð. Loks vilj­um við vera eft­ir­sótt, heil­brigð og sjálf­bær. Þeg­ar við segj­umst vilja vera snjöll þá ætl­um við að nýta snjall­ar lausn­ir og spara íbú­um sporin með ra­f­rænni þjón­ustu, auka þann­ig að­gengi að þjón­ustu og hafa um leið já­kvæð um­hverf­is­leg áhrif. Við erum með­vit­uð um að mik­il­vægt sé að vera til fyr­ir­mynd­ar varð­andi rekst­ur og þró­un starf­sem­inn­ar og að sveit­ar­fé­lag­ið sé rek­ið af ábyrgð og þann­ig af­hend­um við rekst­ur­inn til kom­andi kyn­slóða. Með því að vera sjálf­bær leggj­um við þá áherslu að láta um­hverf­ið okk­ur varða, sinna mála­flokkn­um af kost­gæfni og tryggja að ná­lægð okk­ar við nátt­úruperl­ur sé nýtt sam­fé­lag­inu til góðs.“

    Að mæta þörf­um nýrra íbúa

    Eitt af því sem þátt­tak­end­um í vinn­unni var hug­leik­ið var sú fjölg­un íbúa sem mun verða næstu miss­er­in og mik­il­vægi þess fyr­ir íbúa, kjörna full­trúa og starfs­menn að vel tak­ist til við að nýta það tæki­færi.

    „Við leggj­um því áherslu í stefn­unni á að vöxt­ur sveit­ar­fé­lags­ins hafi já­kvæð áhrif á þjón­ustu og þjón­ustust­ig og það sé sam­eig­in­legt verk­efni íbúa, kjör­inna full­trúa og starfs­fólks að svo verði,“ seg­ir Har­ald­ur að lok­um.

    Fram­tíð­ar­sýn Mos­fells­bæj­ar

    Mos­fells­bær er fjöl­skyldu­vænt, heilsu­efl­andi og fram­sæk­ið bæj­ar­fé­lag sem set­ur um­hverf­iðí önd­vegi og hef­ur þarf­ir og vel­ferð íbúa að leið­ar­ljósi.

    Netspjall

    Opið virka daga
    mán., þri., fim. 8:00-16:00
    mið. 8:00-18:00
    fös. 8:00-14:00

    Þjónustuver 525-6700

    Opið virka daga
    mán., þri., fim. 8:00-16:00
    mið. 8:00-18:00
    fös. 8:00-14:00